Boðar stórfellda vígvæðingu 21. febrúar 2012 00:30
Vladimír Pútín, forsætisráðherra Rússlands, lofar því að kaupa ógrynnin öll af nýjum vopnum fyrir rússneska herinn verði hann kosinn forseti landsins á ný. Tæplega hálfur mánuður er til forsetakosninga í Rússlandi. Samkvæmt skoðanakönnunum getur Pútín átt von á um það bil 50 prósenta fylgi, en aðrir frambjóðendur fá varla meira en tíu prósent hver. Pútín segir, í dagblaðsgrein sem birtist um helgina, að öryggis náttúruauðlinda Rússlands sé ekki gætt nógu vel. Þess vegna ætlar hann að verja 230.000 milljörðum rúblna, eða nærri 95.000 milljörðum króna, næstu tíu árin til kaupa á meira en 400 langdrægum flugskeytum, meira en 600 orrustuþotum, tugum kafbáta og þúsundum skriðdreka. „Við megum ekki leiða neinn í freistni með veikleika okkar," skrifar Pútín í dagblaðið Rossískaja Gazeta. Áform Bandaríkjamanna um að koma upp eldflaugavarnakerfi í Evrópu gera það að verkum, að mati Pútíns, að öflug vígvæðing Rússlands verði enn brýnni.- gb
Fréttir Mest lesið Segist ætla finna orsök einhverfu fyrir september Erlent „Mér finnst þessi tilraun heldur ósmekkleg“ Innlent Lausn menntamálaráðherra sé valdníðsla Innlent Þyrlu Landhelgisgæslunnar flogið norður vegna slyssins Innlent Fyrstu kvenkyns prófessorarnir í stærðfræði fagna dátt Innlent Samstarf með ESB í varnarmálum komið í „formlegan farveg“ Innlent Vilja ekki að íbúar upplifi sig undir stöðugu eftirliti stóra bróður Innlent Nauðgaði barnungri náfrænku sinni margítrekað Innlent Hringbraut lokað vegna bílslyss Innlent Spánverjar óska eftir umræðu um þátttöku Ísrael í Eurovision Erlent Fleiri fréttir Segist ætla finna orsök einhverfu fyrir september Spánverjar óska eftir umræðu um þátttöku Ísrael í Eurovision Ráku yfirmann herstöðvarinnar á Grænlandi eftir heimsókn Vance Ætla að hætta að safna gögnum um losun gróðurhúsalofttegunda Myndir af fjölskyldunni til sölu í fjóra tíma eftir þyrluslysið Telja mögulegt að dularfullar bækur frá miðöldum tengist Íslandi Sex látnir eftir að þyrla brotlenti í New York Ógnarúlfur risinn upp frá dauðum Andrew Tate beint byssu að andliti konu og hótað henni Fæddi barn ókunnugrar konu vegna mistaka Kynntu „sterka stjórn sem er fær um aðgerðir“ Kynna nýja ríkisstjórn Þýskalands Hátt í hundrað látnir eftir að þak skemmtistaðar féll Máttu ekki banna fréttamenn AP Erjur í innsta hring Trump fyrir opnum tjöldum Leggur á 104 prósenta tollgjöld á Kína Segjast hafa handsamað Kínverja sem börðust með Rússum Staðfestir veru úkraínskra hermanna í Belgorod Saka Bandaríkin um kúgun og svara fyrir sig Belgískum prins synjað um félagslegar bætur Mikilvægur fundur með Íran framundan Aflýstu blaðamannafundi skyndilega Eini eftirlifandinn lýsir pyntingum og barsmíðum ísraelskra hermanna Kanye stal Ku Klux Klan-myndinni úr Aftenposten Þrjú látin: Heyrðu öskur þegar hringt var í neyðarlínu Ísraelsher viðurkennir rangfærslur eftir birtingu myndefnis Þúsundir mótmæltu Trump á 1.200 mótmælum Vill tollalaus viðskipti við Evrópu „Þetta verður ekki auðvelt“ Handtekinn fyrir að fara á forboðna eyju Sjá meira