Hættulegur og gengur enn laus 19. desember 2012 06:30 Matthías Máni Erlingsson Hóf í september afplánun fimm ára dóms fyrir gróft ofbeldi gegn stjúpu sinni. „
Ég skil mjög vel gagnrýni og aðfinnslur Fangavarðafélagsins og fangelsisyfirvalda," segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra vegna þeirrar umræðu sem skapast hefur eftir að ofbeldismaðurinn Matthías Máni Erlingsson strauk af Litla-Hrauni í fyrradag. „Ég mun vilja fara yfir þetta með fangelsisyfirvöldum og fulltrúa Fangavarðafélagsins og hlusta á þeirra sjónarmið," segir Ögmundur sem kveður mikinn niðurskurð hafa verið til fangelsismála á undanförnum árum. Augljóst sé að á sjái þegar framlögin séu skert um 20 til 25 prósent. „Hins vegar erum við núna að ráðast í umtalsverðar úrbætur. Í fyrsta lagi hefur verið sett viðbótarfjármagn til að bæta aðstöðuna í fangelsum landsins – þótt enn sé það af skornum skammti – og síðan erum við að ráðast í smíði nýs fangelsis á Hólmsheiði, sem mun gjörbreyta stöðunni," segir Ögmundur. Hann boðar einnig að ýmsar breytingar á lögum fækki þeim sem afpláni refsingu í fangelsi. Það muni draga úr álaginu á fangelsiskerfið. Matthías Máni afplánar dóm fyrir tilraun til manndráps. Hann er 171 sentimetri á hæð. Ábendingar hafa borist um að til hans hafi sést víða á suðvesturhorninu eftir strokið.- sh, gar
Flótti Matthíasar Mána af Litla-Hrauni Mest lesið Vill tollalaus viðskipti við Evrópu Erlent Veitingahús vilji ekki bara ráða ófaglært starfsfólk Innlent Tveir unnu tæpar 80 milljónir hvor Innlent „Þetta verður ekki auðvelt“ Erlent Reynst erfitt að laga tvígreiðsluvillu en gefast ekki upp Innlent Þúsund sinnum sterkara en morfín og erfitt að þekkja Innlent Átta ára sæmd heiðursmerki fyrir að bjarga lífi móður sinnar Innlent Sektaður fyrir of stutt bil milli bíla Innlent Sá eini fagmenntaði missti vinnuna Innlent Vill að flugumferð verði beint frá loftrými kirkjunnar á meðan þau flytja Bach Innlent Fleiri fréttir Veitingahús vilji ekki bara ráða ófaglært starfsfólk Reynst erfitt að laga tvígreiðsluvillu en gefast ekki upp Tveir unnu tæpar 80 milljónir hvor Vísa kjaradeilunni til ríkissáttasemjara 32 Úkraínubúar á íslenskunámskeið á Selfossi Sektaður fyrir of stutt bil milli bíla Þúsund sinnum sterkara en morfín og erfitt að þekkja Þúsund sinnum sterkara en morfín og safnað fyrir Kvennaathvarfi Ríkissaksóknari hefur óskað eftir áfrýjunarleyfi til Hæstaréttar Vill að flugumferð verði beint frá loftrými kirkjunnar á meðan þau flytja Bach Átta ára sæmd heiðursmerki fyrir að bjarga lífi móður sinnar Setja skorður á tjáningu meðlima til að „kæla aðeins niður hitann“ Tæknidagur fjölskyldunnar er í Neskaupstað í dag Ekki mikill sparnaður í að segja upp fagfólki Óbeit ungra drengja á trans fólki áhyggjuefni Menntaðir þjónar sniðgengnir og óbeit ungra drengja á trans fólki Óttast að efnið sé þegar komið í dreifingu á Íslandi Landris hafið og enn dregur úr skjálftavirkni Þyrla ferjaði vistir fyrir fjallgönguhóp Ratcliffe Mannúðarmál að fangar fái að afplána í sínu heimalandi Sá eini fagmenntaði missti vinnuna Fangageymslur fullar eftir nóttina Kviknaði í gömlum bústað við Rauðavatn „Kynjafræði er pólitísk í eðli sínu“ Vilja fækka leyfilegum fjölda borgarfulltrúa Segir mjög litlar líkur á öðru gosi á næstunni „Allt sem er innan velsæmismarka verður tekið til greina“ Eldrauðar kauphallir og færri hraðahindranir í borginni Björg Ásta nýr framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins Ákærður fyrir að aka stolnum bíl út af skakkur og dauðadrukkinn Sjá meira