Innlent

Fannst undarlegt að borða dýr sem hún var nýbúin að skoða

Leikkonan Emma Watson sagði í viðtali við þáttastjórnandann David Letterman að Ísland væri gullfallegt land, „þetta er eins og að koma til annarrar plánetu," útskýrði Emma þegar hún lýsti reynslu sinni af landinu. Leikkonan var hér við tökur á kvikmyndinni Nóa ásamt stórstirninu Russel Crowe í sumar.

Emma sagði í viðtalinu að þó Ísland væri fallegt land þá hefði hún átt í töluverðum vandræðum með matinn. Hún sagði það frekar sérkennilega aðferð hjá ferðaskrifstofum að bjóða ferðamönnum að borða dýrin sem þeir væru nýbúnir að skoða, svo sem lunda, hval eða hreindýr.

„Mér fannst það frekar óþægilegt," sagði Emma hreinskilningslega. Letterman fullvissaði hana þá um að Íslendingar gerðu þetta bara til þess að hrella ferðamennina.

Auk þess sem Letterman forvitnaðist um heimsfræga álfatrú Íslendinga þá spurði hann hvort Íslendingar væru ekki meira eða minna alkahólistar upp til hópa. Emma svaraði þá að þjóðin tæki drykkju sína nokkuð alvarlega.

Myndbandið má skoða hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×