Fólksflutningar síst meiri nú en áður Jón Hákon Halldórsson skrifar 3. apríl 2012 14:49 Í skýrslunni kemur fram að fólksflutningar séu ekki miklir í sögulegu samhengi. mynd/ stefán.
Brottflutningur íslenskra ríkisborgara undanfarin ár er síst meiri en hann hefur verið á öðrum samdráttarskeiðum. Þetta fullyrðir Ólöf Garðarsdóttir, prófessor við menntavísindasvið Háskóla Íslands, í nýrri skýrslu um mannfjöldaþróun sem hún vann fyrir velferðarráðuneytið. Í skýrslunni er þetta skýrt með því að atvinnuleysi sé mikið alls staðar á Evrópska efnahagssvæðinu að Noregi undanskildu. Íslendingar hafi líkt og aðrar Norðurlandaþjóðir notið góðs af þeim hagfelldu aðstæðum sem ríki í Noregi og hafi sótt þangað í talsverðum mæli. Þá segir í skýrslunni að brottflutningur erlendra ríkisborgara hafi verið fremur lítill ef tekið sé mið af þeim mikla fjölda sem kom hingað í aðdraganda hruns. Atvinnuleysi sé mikið í öllum löndum Evrópusambandsins og víðast hvar meira en hér á landi. Þrátt fyrir versnandi lífskjör hér á landi kunni að vera að þau séu betri hér en í heimalandinu. Flestir innflytjenda á Íslandi séu frá Póllandi en þar sé atvinnuleysi umtalsvert meira en á Íslandi og atvinnuleysistryggingar lakari. Því sé ekki endilega ástæða fyrir pólska ríkisborgara sem hafa áunnið sér rétt til atvinnuleysisbóta á Íslandi að snúa aftur til Póllands. „Ljóst er brottflutningur undanfarin þrjú ár hefur breytt mun minna um samsetningu íbúa en aðflutningur áratugarins þar á undan. Íslendingum hefur þannig ekki fækkað meira en verið hefur á öðrum samdráttarskeiðum. Hins vegar er ljóst að þeir útlendingar sem hingað hafa sótt á undanförnum tveimur áratugum hafa breytt miklu um svipmót þjóðfélagsins," segir í skýrslunni.
Mest lesið Loftefni hrundi í húsi sem fæst ekki uppkeypt Innlent Útkallið reyndist vera tóm vitleysa Innlent Lögreglubíll og pallbíll sennilega ónýtir eftir harðan árekstur Innlent Neyðarþyrluflug með ferðamann á Jökulfjörðum „vísir að misnotkun“ Innlent „Öfga vinstri brjálæðingur“ og „Lygna-Kamala“ Erlent Lögreglumaður traðkaði á höfði manns Erlent Lýsa yfir hættustigi Innlent „Orðlaus af reiði“ yfir óboðlegu leikskólahúsnæði í Ármúla Innlent Skákar Trump í skoðanakönnun Erlent Hraunflæði það hratt að ekki yrði hlaupið undan því Innlent Fleiri fréttir Tveir fluttir á bráðamóttöku eftir árekstur á Miklubraut Ósáttur með hótelið, golfvellina og matinn en fær ekkert endurgreitt „Þurfum að grípa inn í ekki seinna en strax“ Þjórsárdalur heillar og synt í Gjánni Aftengja sig Pírataspjallinu Eldur í gaskút á Egilsgötu Ekki fallist á að dyrabjallan sé að fylgjast með nágrannanum Ekki á því að yfirgefa Grindavík endanlega Milljarðs tap Play og götulist í Hafnarfirði Kviknaði í bíl í miðborginni Myndlistaskólinn yfirgefur JL-húsið Pósturinn varar við netþrjótum Færa varðturninn í nýjustu sundlaug Reykjavíkur Dagbjört dæmd í tíu ára fangelsi fyrir líkamsárás „Orðlaus af reiði“ yfir óboðlegu leikskólahúsnæði í Ármúla „Það er svolítill vælukjóatónn í honum“ Rýna ekki frekar í þyrlubjörgun við Fljótavík Útkallið reyndist vera tóm vitleysa Einar býður Sunnu í kaffi og vill ræða áburð um karlrembu Margt sem kann að skýra fjölgun tilkynninga til barnaverndar Hættustig í Grindavík og veiklulegur Biden „Hvað ertu að gera í þessum karlrembuflokki?“ Meðalævilengd Íslendinga styttist Sluppu furðuvel frá heimsókn hesta á golfvöllinn Segir Menntamálastofnun ekki hafa ráðið við stafræn samræmd próf Ágreiningur um kött og hótanir gegn börnum Fyrirvari fyrir næsta gos gæti verið nokkrar mínútur Kona grunuð um að verða sex ára syni sínum að bana sögð sakhæf „Okkur þykir mjög miður að þetta hafi gerst“ Öllu gríni fylgi alvara Sjá meira