Körfubolti

Helena í aðalhlutverki í stórsigri Good Angels | Skoraði 28 stig

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Helena Sverrisdóttir átti flottan leik um helgina þegar lið hennar Good Angels Kosice vann 122-49 útisigur á Cassovia Kosice í slóvakísku deildinni í körfubolta. Helena var stigahæst í sínu liði með 28 stig.

Helena hefur þar með skorað yfir 20 stig í fjórum deildarleikjum í röð þar af hefur hún skoraði 57 stig í síðustu tveimur leikjum liðsins.Good Angels hefur unnið alla sextán leiki sína í deildinni til þessa.

Það má sjá svipmyndir frá leik helgarinnar með því að smella hér fyrir ofan en þar skorar Helena margar flottar körfur auk þess að eiga nokkrar glæsilegar stoðsendingar á félaga sína í liðinu. Helena leikur í treyju númer 24 til glöggvunar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×