Flestir treysta Landhelgisgæslunni Jón Hákon Halldórsson skrifar 13. desember 2012 16:08
Landhelgisgæslan er sú stofnun á sviði réttarfars og dómstóla sem nýtur mest trausts í samfélaginu, samkvæmt niðurstöðum skoðanakönnunar MMR. Traust til allra stofnana sem könnunin nær til hefur aukist frá síðustu mælingu, sem gerð var í febrúar 2011. Alls sögðust 87,3% þeirra sem tóku afstöðu bera mikið traust til Landhelgisgæslunnar. Traust til Landhelgisgæslunnar hefur aukist nokkur frá því í febrúar 2011 þegar 80,8% sögust bera mikið traust til hennar. Traust á dómskerfinu í heild hefur aukist nokkuð og sögðust 44,5% þeirra sem tóku afstöðu bera mikið traust til þess, borið saman við 33,6% í febrúar 2011. Í könnuninni nú mældist Ríkislögreglustjóri njóta trausts 64,9% þeirra sem tóku afstöðu og 50,7% sögðust bera mikið traust til Ríkissaksóknara. Traust til Hæstaréttar hækkar nokkuð frá því í febrúar 2011 þegar 38,8% sögðust bera mikið traust til stofnunarinnar, borið saman við 53,2% nú. Jafnframt hefur hlutfall þeirra sem bera lítið traust til Hæstaréttar minnkað talsvert á milli mælinga, úr 34,7% í febrúar 2011 í 19,5% nú.Traust til Útlendingastofnunar eykst nokkuð frá því í febrúar 2011 þegar 22,2% þeirra sem tóku afstöðu sögðust bera mikið traust til stofnunarinnar, borið saman við 27,4% nú. Traust til embættis sérstaks saksóknara hefur dregist nokkuð saman frá því í febrúar 2011 þegar 59,8% þeirra sem tóku afstöðu sögðust bera mikið traust til stofnunarinnar borið saman við 51,8% nú.Hér má sjá könnun MMR.
Mest lesið Lést í umferðarslysi við Álfabakka Innlent Tuttugu og þrjár konur stíga fram og fórnarlömb raðnauðgara talin á sjöunda tug Erlent „Auðvitað lét ég hann heyra það“ Innlent Flugmaðurinn sem týndi herþotu tjáir sig Erlent Handtökur hér á landi þegar stór barnaníðssíða var tekin niður Innlent „Þetta er bara brandarakvöld“ Innlent Stöðumælaverðir lausir við ákvörðun um sekt Innlent Þingkonur þjarma að heilbrigðisráðherra Innlent Svæðisstjóri Vegagerðarinnar sleginn vegna banaslyssins Innlent „Það munaði minnstu að þeir dræpu mig“ Innlent Fleiri fréttir Harma að upplýsingar hafi verið sendar út fyrir mistök Tveimur sleppt og þrír eftir í haldi Þingkonur þjarma að heilbrigðisráðherra Þurfa ekki að skila Stálskipaauðnum Furðar sig á undirritun án aðkomu Alþingis Vilja hagræða í Reykjavík og leita til borgarbúa Grindvíkingum hleypt inn í bæinn á ný Fimm ára nauðgunardómur stendur Boðar brottvísanir brotamanna og afnám átján mánaða reglu Handtökur hér á landi þegar stór barnaníðssíða var tekin niður Segir Viðreisn óforbetranlegan stjórnlyndisflokk Aðalmeðferð hafin í Menningarnæturmáli Bein útsending: Þjóðaröryggi – Íslendingar og hafið Stöðumælaverðir lausir við ákvörðun um sekt Svæðisstjóri Vegagerðarinnar sleginn vegna banaslyssins Möguleiki að kvikugangurinn opnist nærri Reykjanesbraut Möguleiki að gos hefjist norðanmegin en ólíklegt þó Af neyðarstigi og á hættustig 48 þúsund króna sekt fyrir að beita hund harðýðgi „Þetta er bara brandarakvöld“ Hafa núna skrifborð þar sem áður var flugstýri Meðalævilengd eykst milli ára og ungbarnadauði minnkar Lést í umferðarslysi við Álfabakka „Auðvitað lét ég hann heyra það“ Samfylkingin mælist með 27 prósenta fylgi Réðust á og hótuðu starfsmönnum verslunar Engin virkni á gossprungunni en glóð logar í hrauninu Skipað í nýja Grindavíkurnefnd Sjálfstæðisflokkurinn langstærstur Borgarstjóra falið að beita sér fyrir því að einkaflug á Reykjavíkurflugvelli fari annað Sjá meira