Formúla 1

Keppa með símann í bílnum og "tvíta" þegar 40 hringir eru eftir

Birgir Þór Harðarson skrifar
Þeir virðast alveg vera með þetta ökumennirnir í NASCAR mótaröðinni í Bandaríkjunum því þeir tvíta í miðjum kappakstri eins og ekkert sé eðlilegra.

Í Daytona 500 kappakstrinum sem fram fór í fyrrinótt varð nefninlega slys og síðustu 40 hringjunum var frestað í tæpa tvo tíma. Á meðan keppninni er frestað mega liðin ekki snerta bílana og er þeim einfaldlega lagt þar sem þeir eru þegar rauðu flöggunum er veifað.

Í hléinu varð Brad Keselowski hins vegar fyrsti ökumaðurinn í sögu kappaksturs til að tvíta í miðjum kappakstri. Fyrsta tvítið var á þessa leið: "Fire!"

Það var því lítið annað fyrir ökumennina að gera en að taka fram símana sína, setja á sig derhúfuna og byrja að tvíta. Keselowski (@keselowski) var einn þeirra og tóku lýsendur keppninnar eftir því að Brad sendi mynd af slysinu á Twitter úr bílnum sínum um leið og hann hafði stöðvast.

Keselowski tvítaði því í beinni útsendingu í sjónvarpinu og stærti sig af því, rétt áður en keppnin fór aftur af stað, að hafa eignast 100.000 nýja "followers" í hléinu. Hann auglýsti það líka að hann hafði aðeins eitt 40% af rafhleðslunni í símanum sínum á meðan hléinu stóð.

Myndbandið sem fylgir hér að ofan er svo af mest spennandi keppninni á Daytona strönd í gærkvöldi: Dale Earnhard Jr. og Brad Keselowski kepptust um að komast fyrst á klósettið.

Tengdar fréttirNASCAR tímabilið hefst með hvelli með Daytona 500




Fleiri fréttir

Sjá meira


×