Menning

Kærkomið tækifæri fyrir tónlistarmenn

Mikael süssmann Fiðluleikarinn norski kemur fram á tónleikum í Þjóðmenningarhúsinu í kvöld.
Mikael süssmann Fiðluleikarinn norski kemur fram á tónleikum í Þjóðmenningarhúsinu í kvöld.
Síðsumartónleikar í Þjóðmenningarhúsinu er yfirskrift tónleikaraðar sem hafin er í Þjóðmenningarhúsinu og stendur til 4. september næstkomandi auk tónleika 23. september.

Á tónleikunum koma fram evrópskir listamenn sem eiga það sameiginlegt að vera skipuleggjendur tónleika og forsvarsmenn tónlistarhátíða í sínum heimalöndum.

„Tónleikaröðin er kærkomið tækifæri fyrir íslenska tónlistarmenn að hitta kollega sína erlenda sem hafa skipulagt tónlistarhátíðir og mynda tengsl og sambönd sem geta verið ómetanleg fyrir ferilinn," segir Sigurður Bragason, söngvari og einn listrænna stjórnenda tónleikaraðarinnar.

„Ég hef sjálfur komið fram á fjölda listahátíða og fór að velta fyrir mér hvernig ég gæti nýtt þau sambönd sem ég er kominn með, þannig kom þessi tónleikaröð til."

Tónlistarmennirnir eru allir í fremstu röð að sögn Sigurðar. Á tónleikum kvöldsins, sem hefjast klukkan átta, stíga á svið Norðmennirnir Michael Süssmann fiðluleikari og Signe Bakke píanóleikari.

Þá taka einleikstónleikar á píanó við: Peter Bortfeldt frá Þýskalandi leikur næsta sunnudag klukkan átta, Sebastiano Brusco frá Ítalíu kemur fram þriðjudaginn 4. september á sama tíma og loks heldur íslensk-bandaríski píanóleikarinn Kristín Jónína Taylor tónleika sunnudaginn 23. september klukkan átta.

Auk Sigurðar eru listrænir stjórnendur tónleikanna Guðrún Birgisdóttir og Guðni Bragason.

- sbt






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.