Sport

Helga Margrét á enn möguleika

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Helga Margrét Þorsteinsdóttir á enn möguleika á að ná Ólympíulágmarkinu í sjöþraut eftir fyrri keppnisdaginn á franska meistaramótinu í fjölþraut.

Helga Margrét er með 3318 stig sem er þó nokkuð frá metþraut hennar frá 2009. Þá var hún með 3520 stig að loknum fyrri keppnisdegi.

Hún hljóp 100 m grindahlaup á 14,77 sekúndum og stökk 1,65 m í hástökki sem er nokkuð frá hennar besta.

Hún bætti hins vegar sinn besta árangur í kúluvarpi er hún kastaði 14,36 m og hljóp svo 200 m hlaup á 25,60 sekúndum sem er hennar besti tími í greininni í tvö ár.

Íslandsmet hennar er 5.878 stig en Ólympíulágmarkið er 5.950 stig. Vésteinn Hafsteinsson, umboðsmaður hennar og ráðgjafi, segir að hún þurfi að bæta sig í tveimur greinum til að eiga möguleika á að komast til Lundúna.

Vésteinn segir að hún þurfi að stökkva 5,85 m í langstökki en best á hún 5,92 í greininni og kasta 51 m í spjótkasti en þar á hún best 50,84 m. Þá þurfi hún að hlaupa 800 m hlaup á tveimur mínútum og ellefu sekúndum og yrði það þá bæting upp á tæpar tvær sekúndur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×