Körfubolti

Troðslukóngurinn mætir aftur og gæti tekið met af Jordan

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Mac McClung er mikill háloftafugl eins og hann hefur sýnt í troðslukeppnum sínum til þessa.
Mac McClung er mikill háloftafugl eins og hann hefur sýnt í troðslukeppnum sínum til þessa. Getty/Stacy Revere

Mac McClung mætir aftur í troðslukeppni stjörnuleiks NBA sem fer fram í San Francisco 17. febrúar næstkomandi.

McClung hefur unnið troðslukeppnina tvisvar og getur orðið sá fyrsti til að vinna hana þrjú ár í röð.

McClung samdi við lið Orlando Magic í október.

McClung keppir á móti Stephon Castle, nýliða San Antonio Spurs rookie, Matas Buzelis, nýliða Chicago Bulls og Andre Jackson Jr. hjá Milwaukee Bucks sem er á sínu öðru ári.

McClung vann keppnina í fyrra með því að troða yfir Shaquille O'Neal í Indianapolis. Hann er 188 sentímetrar á hæð en Shaq er 216 sentímetrar á hæð.

Hann varð þá aðeins sá fimmti í sögunni til að vinna troðslukeppnina tvö ár í röð og deilir metinu með Michael Jordan, Nate Robinson, Jason Richardson og Zach LaVine:

McClung var stigahæsti leikmaður G-deildar NBA í fyrra með 25,7 stig í leik þar sem hann spilaði með Osceola Magic. Hann var einnig kosinn mikilvægastur í deildinni.

Hinn 26 ára gamli McClung spilaði í háskólaboltanum með Georgetown og Texas Tech.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×