Innlent

Þórhallur gefur kost á sér í biskupskjöri

Þórhallur Heimisson, sóknarprestur í Hafnarfjarðarkirkju, hefur ákveðið að gefa kost á sér til embættis biskups Íslands.

Í tilkynningu um framboð sitt segir Þórhallur meðal annars að hann hafi tekið ákvörðun sína að vel ígrunduðu máli og eftir ítarlegt samtal við kjörmenn bæði leika og lærða.

Þá vill hann nota tækifærið og þakka öllum sem hafi hvatt sig bæði leynt og ljóst til að taka þessa ákvörðun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×