Norskt dagblað vill Stoltenberg burt Jón Hákon Halldórsson skrifar 14. ágúst 2012 07:00 Jens Stoltenberg sætir harðri gagnrýni í Verdens Gang. mynd/ afp.
Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs, ætti að segja af sér embætti vegna sannleiksskýrslunnar um hryðjuverkin í Noregi í fyrra, að mati leiðarahöfundar norska blaðsins Verdens Gang. Eins og fram kom í fréttum í gær er það ein meginniðurstaða skýrslunnar, sem kom út í gær, að það hefði mátt koma í veg fyrir hryðjuverkin í Útey og Osló, þegar Anders Behring Breivik varð 77 manns að bana. Í skýrslunni kemur skýrt fram að norska lögreglan hafi brugðist of seint við þegar Breivik réðst til atlögu í Útey. Leiðarahöfundur gerir þetta að umtalsefni: „Samfélagsstofnanir sem áttu að vernda bæði þjóð og land virkuðu ekki. Verri dóm gæti ríkisstjórn ekki hafa fengið. Þau brugðust, þau brugðust okkur," segir orðrétt í leiðaranum. Á blaðamannafundi sem Stoltenberg hélt í gær eftir að skýrslan kom út var hann þráspurður að því hvort hann hyggðist segja af sér. Hann útilokaði það ekki. Hann sagðist vera ábyrgur fyrir því sem hefði gengið upp og því sem hefði ekki gengið upp þennan örlagaríka daga. Núna væri hann ábyrgur fyrir því sem þyrfti að bæta.
Hryðjuverk í Útey Noregur Mest lesið Segir afnám samsköttunar svik við kjósendur Innlent Kvikugangur frá Krýsuvík gæti náð inn í Heiðmörk Innlent Saka Bandaríkin um kúgun og svara fyrir sig Erlent Lýsa eftir Svövu Lydiu Innlent ÍR kveikti á skiltinu án leyfis Innlent Belgískum prins synjað um félagslegar bætur Erlent Tímamót í opinberri heimsókn Höllu til Noregs Innlent Staðfestir veru úkraínskra hermanna í Belgorod Erlent Afsökunarbeiðni til Ólafar ekki í kortunum Innlent Tíðir Esjufarar hryggir vegna örlaga Steins Innlent Fleiri fréttir Staðfestir veru úkraínskra hermanna í Belgorod Saka Bandaríkin um kúgun og svara fyrir sig Belgískum prins synjað um félagslegar bætur Mikilvægur fundur með Íran framundan Aflýstu blaðamannafundi skyndilega Eini eftirlifandinn lýsir pyntingum og barsmíðum ísraelskra hermanna Kanye stal Ku Klux Klan-myndinni úr Aftenposten Þrjú látin: Heyrðu öskur þegar hringt var í neyðarlínu Ísraelsher viðurkennir rangfærslur eftir birtingu myndefnis Þúsundir mótmæltu Trump á 1.200 mótmælum Vill tollalaus viðskipti við Evrópu „Þetta verður ekki auðvelt“ Handtekinn fyrir að fara á forboðna eyju „En það sem ég var aldrei, var nauðgari“ Tollahækkanir Trump taka gildi TikTok hólpið í bili Rak sex eftir fund með umdeildum samsæringi Russell Brand ákærður fyrir nauðganir og kynferðisbrot Sendi Dönum tóninn Saka Pútín um að draga lappirnar Rannsaka dráp á sjúkraliðum en neita að þeir hafi verið teknir af lífi Forseti Suður-Kóreu leystur frá embætti Rannsaka góðgerðarsamtök sem Harrý stofnaði Grunaður um að verða mæðgum að bana Tóku mið af viðskiptahalla en ekki tollum „Kokkurinn“ í Bandidos látinn Draga sig úr Alþjóðasakamáladómstólnum fyrir heimsókn Netanjahú Kvarta sáran yfir vopnakaupum Evrópu Flugmaðurinn sem týndi herþotu tjáir sig Fjölga flugmóðurskipum og herþotum í Mið-Austurlöndum Sjá meira