Körfubolti

Butler valin best í fyrri hluta IE-deildar kvenna

Jaleesa Butler.
Jaleesa Butler.
KKÍ veitti í dag verðlaun fyrir fyrri hluta Iceland Express-deildar kvenna. Besti leikmaðurinn var valin Jaleesa Butler hjá Keflavík en hún hefur leikið einkar vel það sem af er vetri.

Þjálfari Njarðvíkurliðsins, Sverrir Þór Sverrisson, var valinn besti þjálfarinn. Haukastúlkan Íris Sverrisdóttir var síðan valin dugnaðarforkurinn.

Lið fyrri hlutans er svo hér að neðan:

Pálína Gunnlaugsdóttir, Keflavík

Hildur Sigurðardóttir, Snæfell

Petrúnella Skúladóttir, Njarðvík

Sigrún Sjöfn Ámundadóttir, KR

Jaleesa Butler, Keflavík




Fleiri fréttir

Sjá meira


×