Körfubolti

Helgi öflugur í sigurleik

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Helgi Már Magnússon í leik með KR.
Helgi Már Magnússon í leik með KR. Mynd/Anton
Helgi Magnússon spilaði mjög vel þegar að lið hans, 08 Stockholm, vann góðan sigur á Borås Basket í sænsku úrvalsdeildinni í dag, 95-75.

Helgi skoraði fimmtán stig í leiknum og tók þar að auki sjö fráköst, flest allra í sínu liði. Hann gaf einnig þrjár stoðsendingar og stal boltanum einu sinni.

08 náði forystu snemma í leiknum og hélt henni allt til leiksloka. Liðið er nú í sjöunda sæti deildarinnar með 24 stig en aðeins fjögur lið eru í topplið deildarinnar.

Sundsvall Dragons mistókst einmitt í kvöld að koma sér á topp deildarinnar þar sem liðið steinlá fyrir Uppsala á útivelli, 103-86.

Jakob Sigurðarson skoraði 23 stig fyrir Sundsvall og var stigahæstur en Hlynur Bæringsson átti einnig góðan leik og skoraði fimmtán stig auk þess að taka þrettán fráköst.

Pavel Ermolinskij gat ekki spilað með Sundsvall vegna meiðsla en óvíst er hversu lengi hann verður frá.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×