
Áskorun réttarkerfis og samfélags
Ofangreind orð hefur Liz Kelly, prófessor við London Metropolitan University, eftir konu sem kærði mann fyrir nauðgun. Maðurinn var sýknaður en konan hafði engu að síður afar jákvæða upplifun af réttarkerfinu. Til samanburðar bendir Kelly á upplifun konu í máli þar sem sakborningur var fundinn sekur en konan var engu að síður niðurbrotin þegar málinu lauk vegna upplifunar af réttarkerfinu.
Liz Kelly var meðal átta fyrirlesara á ráðstefnu um meðferð kynferðisbrota sem innanríkisráðuneytið og Lagadeild Háskóla Íslands stóðu fyrir í samvinnu við Rannsóknastofnun Ármanns Snævarr um fjölskyldumálefni og Evrópuráðið föstudag 20. janúar sl. Um tvö hundruð manns tóku þátt í ráðstefnunni og þar á meðal voru fræðimenn, lögreglumenn, dómarar, saksóknarar, lögmenn, brotaþolar, starfsfólk barnaverndar og fulltrúar grasrótarsamtaka.
Barnvinsamlegt réttarkerfiÍ fyrsta hluta ráðstefnunnar var fjallað um sáttmála Evrópuráðsins um vernd barna gegn kynferðislegri misneytingu og kynferðislegri misnotkun. Einnig var fjallað um svonefndar barnvinsamlegar réttarreglur. Mikið vatn hefur runnið til sjávar í meðferð kynferðisbrota gegn börnum. Réttarkerfið var vitanlega ekki upphaflega þannig úr garði gert að því væri yfirleitt ætlað að taka á móti börnum en smám saman hefur það þróast til barnvinsamlegri vegar og er litið til Íslands sem fyrirmyndar í þeim efnum, ekki síst með tilkomu Barnahúss. Réttarvernd barna hefur aukist á Íslandi og smám saman er verið að skapa farveg fyrir börn til að greina frá ofbeldi sem þau verða fyrir. Lokatakmarkið er þó enn fjarri en hvert skref í rétta átt er þýðingarmikið.
Í öðrum hluta ráðstefnunnar var fjallað um meðferð nauðgunarmála innan réttarkerfisins og kom þar meðal annars fram að lagabreytingar kunna að hafa takmörkuð áhrif til þess að auka réttarvernd brotaþola nauðgana ef viðhorfsbreyting fylgir ekki með. Viðhorf samfélagsins endurspeglist á öllum stigum meðferðar nauðgunarmála. Þannig sýna alþjóðlegar rannsóknir að mestar líkur eru á að sakfellt sé í nauðgunarmálum sem bera einkenni þeirrar staðalímynda sem ríkja um nauðganir, t.d. þar sem gerandinn er ókunnugur þolandanum og/eða líkamlegu ofbeldi er beitt. Liz Kelly benti hins vegar á að nauðganir væru mun hversdagslegri en margir gerðu sér í hugarlund. Þær ættu sér oftast stað milli fólks sem þekkist og margfalt oftar en flestir vildu þora að trúa. Í þriðja hluta ráðstefnunnar var boðið upp á þrjár málstofur þar sem fulltrúar fræðasamfélagsins, réttarvörslukerfisins og frjálsra félagasamtaka leiddu saman sjónarmið sín um meðferð kynferðisbrota. Þannig var fjallað um samspil barnaverndarkerfisins og réttarvörslukerfisins, hvað leiði til ákæru í nauðgunarmálum og um trúverðugleika og sönnunarmat.
Traust og bætt réttarverndKynferðisbrotamál eru mikil áskorun fyrir réttarkerfið – og samfélagið í heild sinni – hvort sem er á Íslandi eða erlendis. Sé litið til tölfræðinnar hér á landi þá leita hundruð barna, kvenna og karla sér aðstoðar á ári hverju vegna kynferðisofbeldis. Hlutfallslega hljóta fá mál meðferð fyrir dómstólum og má því færa rök fyrir því að réttarkerfið nái aðeins að litlum hluta utan um þessi brot. Með ráðstefnu sem þessari er reynt að varpa ljósi á það hvers vegna svo er. Hugsanlega má með því móti finna leiðir til að auka réttarvernd brotaþola kynferðisofbeldis. Réttarvernd sakborninga er einnig meiri ef traust ríkir um meðferð brotanna innan réttarkerfisins og að hverju sinni sé grundvallarreglum stjórnarskrár og laga fylgt. Loks er afar mikilvægt að gerðar séu virkar ráðstafanir til að efla forvarnir með aukinni fræðslu og vitund um eðli þessara mála.
Það hlýtur að vera markmið allra sem að þessum málum koma að upplifun brotaþola af því að leita réttar síns sé sambærileg því sem konan sem vitnað er til í upphafi þessarar greinar lýsir. Þannig má byggja upp traust um að allt sé gert til að leiða fram sannleikann og þannig geta brotaþolar betur unnið úr reynslu sinni, hver sem niðurstaða málaferla er.
Innanríkisráðuneytið og Lagadeild Háskóla Íslands munu halda áfram samstarfi til að stuðla að opinni, gagnrýnni og uppbyggilegri umræðu um meðferð kynferðisbrota innan réttarkerfisins og vilja þannig leggja sitt af mörkum til áframhaldandi vitundarvakningar um kynferðislegt ofbeldi í íslensku samfélagi. Ráðstefnan sem hér er vitnað til bar þess merki að ríkur vilji sé til slíks samtals en það eitt og sér er mikilvægur áfangi á langri vegferð.
Skoðun

Með hjúkkuna upp í rúm og lækninn í vasanum
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar

Hverjir eiga Ísland?
Jón Baldvin Hannibalsson skrifar

Komum náminu á Höfn í höfn
Halla Hrund Logadóttir skrifar

Betra líf eftir greiningu krabbameins, tímamótarannsókn sem vísar veginn
Sigríður Gunnarsdóttir skrifar

Veiðigjöld vs afnám undanþágu orkumannvirkja frá fasteignamatsskyldu
Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar

Tollar – Fyrir hverja?
Valdimar Birgisson skrifar

Þau eru fá en þörfin er stór
Sif Huld Albertsdóttir skrifar

Samvinnufélög, valkostur í atvinnurekstri
Elín H. Jónsdóttir,Guðrún Johnsen skrifar

Leiðin til helvítis
Jón Pétur Zimsen skrifar

Eitruð kvenmennska
Ása Lind Finnbogadóttir skrifar

Hinn nýi íslenski aðall
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar

Samningur HSÍ við Rapyd – Opið bréf til frambjóðenda í formannskjöri
Hópur stuðningsmanna Íslands í handbolta skrifar

Gjaldskrár munu ekki virka til að koma aftur framleiðslu af stað
Sæþór Randalsson skrifar

Mannúð og samvinna á tímum sögulegra þjáninga
Sólrún María Ólafsdóttir skrifar

Hvernig getum við notað nýjar ráðleggingar um mataræði?
Óla Kallý Magnúsdóttir,Jóhanna E. Torfadóttir skrifar

Þegar rykið hefur sest
Jörgen Ingimar Hansson skrifar

Búum til réttlátt lífeyriskerfi
Hrafn Magnússon skrifar

Á undan jarðýtu komi fornleifafræðingur…
Stefán Pálsson skrifar

Hin raunverulega byggðastefna
Jón Þór Kristjánsson skrifar

Sameining Garðabæjar og Hafnarfjarðar – kostir – ókostir - skynsemi
Ó. Ingi Tómasson skrifar

Rúmir 30 milljarðar í fangelsi
Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar

Sérstök staða orkusveitarfélaga!
Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar

Miklar endurbætur á lánum menntasjóðs námsmanna
Elín Íris Fanndal skrifar

Drögum úr fordómum í garð Breiðholts
Alex Vor Ólafs,Jörundur Þór Hákonarson,Theodóra Líf Reykdal skrifar

Er almenningur rusl?
Sigurður Ingi Friðleifsson skrifar

Líffræðilega ómögulegt
Björn Ólafsson skrifar

Veiðigjaldið stendur undir kostnaði
Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar

Minn gamli góði flokkur
Hólmgeir Baldursson skrifar

Hve lengi tekur sjórinn við?
Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar

Orkan okkar, börnin og barnabörnin
Jóna Bjarnadóttir skrifar