Körfubolti

LeBron með þrefalda tvennu í öruggum sigri Bandaríkjanna

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Lebron James í leiknum í kvöld.
Lebron James í leiknum í kvöld. Mynd/AP
Bandaríkjamenn eru fáum að óvörum komnir í undanúrslit í körfuboltakeppni Ólympíuleikanna eftir 33 stiga sigur á Ástralíu, 119-86, í átta liða úrslitunum í kvöld. Bandaríkjamenn mæta Argentínu í undanúrslitunum en í hinum leiknum spila Rússar og Spánverjar.

Lebron James var með þrefalda tvennu í sigrinum á Áströlum en auk 11 stiga, tók hann 14 fráköst og gaf 12 stoðsendingar. Kobe Bryant var stigahæstur með 20 stig á 20 mínútum og Deron Williams var með 18 stig. Patrick Mills skoraði 26 stig fyrir Ástrala.

Argentína vann 82-77 sigur á Brasilíu, Spánverjar unnu 66-59 sigur á Frakklandi og Rússar unnu 83-74 sigur á Litháen.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×