Jón var bara að grínast - ekki í framboði 2. janúar 2012 15:11
Jón Ólafsson athafnamaður vísar því alfarið á bug að hann hyggi á framboð til forseta Íslands. Fyrr í dag var sagt frá því að Jón hafi lýst því yfir í nýársfagnaði í gær að hann ætlaði að bjóða sig fram. Jón segir hinsvegar nú í samtali við Vísi að um gamanmál hafi verið að ræða. „Ég var fenginn til að vera með smá uppákomu," segir Jón og bætir við að það hafi greinilega tekist vel til með grínið, fyrst einhverjir hafi lagt trúnað á það. „Ég er ekki einu sinni kjörgengur þar sem ég er með lögheimili erlendis," bætir hann við og vísar því á bug að hann gangi með það í maganum að verða forseti. Hann segir hinsvegar að þessi misskilningur sýni að hver sem er gæti orðið forseti á Íslandi. Nú ættu menn að leggjast vandlega yfir það að finna hæfa frambjóðendur. Að hanns mati ætti helst að varast að fá fólk úr pólitíkinni í verkefnið. Aðspurður hvort hann hafi einhvern ákveðinn í huga til að taka embættið að sér segir Jón að mikið sé til að hæfu fólki sem til greina geti komið. „En ég er ekki þessi manneskja," segir Jón að lokum, léttur í bragði.
Tengdar fréttir Jón Ólafs lýsir yfir framboði og Jón Gnarr íhugar það Eftir yfirlýsingu Ólafs Ragnars Grímssonar þess efnis að hann hyggi ekki á áframhaldandi búskap á Bessastöðum keppast menn nú við að finna mögulegan arftaka. Tveir Jónar hafa í dag bæst í hópinn, Jón Gnarr borgarstjóri sagðist í viðtali á Rás 2 í morgun vera að íhuga framboð. Jón Ólafsson, sem síðustu ár hefur einbeitt sér að því að selja vatn, er á Pressunni sagður hafa lýst yfir framboði á Nýársfagnaði í gær. Ekki hefur náðst í Jón til þess að fá þetta staðfest. 2. janúar 2012 14:29 Mest lesið Vegir víða um land gætu lokast með litlum fyrirvara Innlent Egill Þór er látinn Innlent Kristnir mótmæla í Sýrlandi vegna brennu á jólatré Erlent Men Tolla komið í leitirnar: „Sannkölluð jólasaga“ Innlent Gleðileg jól, kæru lesendur Innlent Margir á síðasta snúningi með jólapakkana Innlent Aðfangadagur: Hvar er opið og hve lengi? Innlent Mínútu fyrr á ferðinni væri Tómas allur Innlent Mette óskaði Kristrúnu til hamingju Innlent Setti ofan í við Ingu: „Vert þú ekki með þennan skæting við mig“ Innlent Fleiri fréttir Gleðileg jól, kæru lesendur Vegir víða um land gætu lokast með litlum fyrirvara Varað við ferðalögum víða um land Margir á síðasta snúningi með jólapakkana Í sumum tilfellum eina hátíðlega stund dagsins Men Tolla komið í leitirnar: „Sannkölluð jólasaga“ Vonskuveður og þau sem eru á síðasta snúningi Fjúgandi hálka í kirkjugörðum Reykjavíkur Stolið hálsmen Tolla dúkkaði upp tuttugu árum síðar Nóg að gera hjá slökkviliðinu í nótt Mette óskaði Kristrúnu til hamingju Aðfangadagur: Hvar er opið og hve lengi? „Skiptir sannleikurinn engu máli?“ Fjölmenni gekk fyrir frið í miðborginni Rútur skildar eftir á Holtavörðuheiði og leiðinni lokað Vísnabók gefin til nýrra Hvergerðinga frá Hveragerðisbæ Vandræðamál sem ríkisstjórnin fær í arf Komust með flugvélinni á ögurstundu Stærstu mál stjórnarinnar bíða til 2026 Mínútu fyrr á ferðinni væri Tómas allur Allt kapp lagt á að landsmenn komist heim fyrir jól Segir ríkisstjórnarsáttmálana keimlíka Eitt Egilsstaðaflug en annars öllu aflýst Hvalveiðilögin barn síns tíma Hyggst greiða atkvæði með bókun 35 Sigurður Ingi segir áberandi glufur í sáttmálanum Endurskoða lög um hvalveiðar á kjörtímabilinu Bagalegt að Sigríður og Helgi Magnús geti ekki unnið saman „Skítaveður á aðfangadagskvöld og jóladag“ Óveður um jólin og Inga tók lagið á fyrsta fundi ríkisstjórnar Sjá meira
Jón Ólafs lýsir yfir framboði og Jón Gnarr íhugar það Eftir yfirlýsingu Ólafs Ragnars Grímssonar þess efnis að hann hyggi ekki á áframhaldandi búskap á Bessastöðum keppast menn nú við að finna mögulegan arftaka. Tveir Jónar hafa í dag bæst í hópinn, Jón Gnarr borgarstjóri sagðist í viðtali á Rás 2 í morgun vera að íhuga framboð. Jón Ólafsson, sem síðustu ár hefur einbeitt sér að því að selja vatn, er á Pressunni sagður hafa lýst yfir framboði á Nýársfagnaði í gær. Ekki hefur náðst í Jón til þess að fá þetta staðfest. 2. janúar 2012 14:29