Tíska og hönnun

Prófaðu rauða varalitinn

Myndir/Cover media
Í desember vantar ekki tilefnin til að setja á sig varalit og lyfta andanum aðeins. Hinsvegar getur verið erfitt að líta ekki alltaf eins út því maður á það jú til að festast í sama farinu þegar það kemur að förðun og hári.

Í þessum hátíðarmánuði gæti verið gaman að prófa eitthvað nýtt, eins og rauðan varalit, hafirðu ekki gert það áður eða ekki þorað. Nú er tíminn.

Rauði varaliturinn hefur lengi vel verið vöruverki söngkonunnar Gwen Stefani, enda fer hann henni einstaklega vel. Sjá má fleiri stjörnur hér að neðan sem einnig eru óhræddar við rauða litinn.

Gætið þess að mála augun ekki of mikið með rauða varalitnum.
Taylor Swift er mjög hrifin af rauðum.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.