Tíska og hönnun

Kronkron afhjúpar nýja línu og jólaglugga

Hægt er að skoða hluta af nýrri haust- og vetrarlínu Kron by Kronkron með því að fletta myndasafninu.
Hægt er að skoða hluta af nýrri haust- og vetrarlínu Kron by Kronkron með því að fletta myndasafninu.
Verslunin Kronkron á Laugavegi hringir inn jólunum á morgun með því að afhjúpa jólaglugga verslunarinnar. Þá er ný haust- og vetrarlína Kron by Kronkron komin í hús og verslunin því full af nýjum og ævintýralegum skóm.

Jólagluggi Kronkron vakti mikla athygli í fyrra en þá skapaði hönnuðurinn Hildur Yeoman lítið jólaævintýri í glugganum. Það tókst svo vel til að ákveðið var að skapa hefð úr gluggainnsetningunni. Í ár tók myndlistarkonan Helga Sif Guðmundsdóttir verkið að sér og ríkir mikil ánægja með hvernig til tókst.

Í tilefni af þessu býður Kronkron gestum og gangandi í opnun á laugardag þar sem boðið verður upp á léttar veitingar. Verslunin er opin milli klukkan 11 og 18 en opnunin hefst klukkan 16.
Helga Sif hefur kannað tengsl myndlistar, tónlistar og arkitektúrs í verkum sínum og vinnur aðallega með innsetningar, hljóðverk og ljósmyndir. Hér má sjá eitt verka hennar frá Svíþjóð þar sem hún stundaði nám.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.