„Það má segja að við séum að leiða saman helstu dívur landsins í skólanum," segir Arnar Gauti framkvæmdastjóri Elite á Íslandi en hann er í óða önn þessa dagana að undirbúa opnun tískuskólans Elite Fashion Academy.
Margrét R Jónasar, förðunarmeistari leiðir förðunarnámið undir formerkjum MAKE UP STORE en þetta er fyrsta sinn sem nám frá sænska förðunarmerkinu er í boði hér á landi
„Það hefur töluvert verið þrýst á mig að opna skóla hérna en MAKE UP STORE er með skóla í Svíþjóð og ég heimsæki hann tvisvar á ári. Ég ákvað að taka þátt í þessu því mér finnst spennandi hvernig skólinn er byggður upp. Nemendurnir fá mikið út úr náminu og innsýn inn í önnur tengd fög í tískubransanum," segir Margrét en hún hefur verið að undirbúa námið síðan síðasta sumar.
Skólinn byrjar 13 febrúar og hefur lagt undir sig 1500 fm húsnæði í Ármúlanum. Fagfólk úr öllum geirum kemur að náminu, sem býður upp á nám í förðun, stíliseringu, ljósmyndun og nagla-og snyrtifræði. Agniezka Baranowska, stílisti og hönnuður, heldur utan um stílistanámið, Kristinn Magnússon sér um að kenna auglýsinga-og tískuljósmyndun auk þess sem boðið er upp snyrtifræðinám til undirbúnings fyrir sveinspróf. Bryndís Bjarnadóttir, fyrrum Elite fyrirsæta, verður aðalleiðbeinandi í framkomu-og fyrirsætunámskeiðum
„Það verður mikil áhersla lögð á samstarf milli deilda og það heillaði mig strax við skólann og ég hlakka til að vinna með öllu þessu færa fólki."
Opið hús verður í skólanum í dag milli klukkan 14 og 17 þar sem gestum og gangandi gefst kost á að kynna sér starfsemi skólans. -áp

