Körfubolti

Brynjar með sextán stig í tapleik

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Brynjar Þór Björnsson.
Brynjar Þór Björnsson. Mynd/Anton
Brynjar Þór Björnsson skoraði 16 stig þegar Jämtland Basket tapaði með 16 stigum á útivelli, 77-93, á móti Borås Basket í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld. Borås komst í efsta sæti deildarinnar með þessum sigri en Jämtland-liðið er áfram í 9. sætinu.

Jämtland-liðið var búið að vinna tvo leiki í röð og átti möguleika á því að komast upp að hlið Solna Vikings með sigri en liðin eru að berjast um áttunda og síðasta sætið inn í úrslitakeppnina.

Brynjar Þór og félagar byrjuðu leikinn hinsvegar mjög illa og voru komnir 18 stigum undir, 17-35, eftir fyrsta leikhlutann. Borås-liðið var eftir það með góð tök á leiknum og landaði að lokum mjög öruggum sigri.

Brynjar spilaði í 35 mínútur í leiknum og var auk stiganna sextán með fimm stoðsendingar og fjóra stolna bolta. Brynjar hitti úr 5 af 11 skotum sínum þar af setti hann niður þrjú af sex skotum sínum fyrir utan þriggja stiga línuna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×