Bynum hetjan í þriðja sigri Lakers á Celtics í röð Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 12. mars 2012 09:04 Bynum naut sviðsljóssins í Staples-höllinni. Nordic Photos / AFP
Los Angeles Lakers lagði erkifjendur sína frá Boston 97-94 í Staples-höllinni í Los Angeles í gærkvöldi. Lakers voru fimm stigum undir þegar tvær og hálf mínúta lifðu leiks. Frábær endasprettur tryggði liðinu sinn þriðja sigur á Celtics í röð. Liðsmenn Los Angeles Lakers komu gestunum í Boston í opna skjöldu í síðustu sókn sinni í viðureign liðanna í Staples Center í gærkvöld. Aldrei þessu vant átti Kobe Bryant ekki að sjá um málið heldur var stillt upp í leikkerfi fyrir hinn hávaxna Andrew Bynum sem kom Lakers þremur stigum yfir þegar 15 sekúndur lifðu leiks. Árangurslaust reyndu leikmenn Celtics að spila stórskyttuna Ray Allen uppi í lokasókn sinni í von um þriggja stiga körfu. Rajon Rondo skaut að lokum úr erfiðri stöðu og missti marks. „Þetta var geggjað. Það var Kobe sem lagði á ráðin fyrir síðustu sóknina," sagði Bynum hæstánægður með að hafa verið leitað til þegar mest lá við. Liðsmenn Lakers eru öllu vanari að fylgjast með og aðstoða hinn magnaða Kobe Bryant í lykilsóknum undir lok leikja en annað var uppi á teningnum í gærkvöldi. „Við elskum að sigra þetta lið," sagði Bynum sem skoraði 20 stig og tók 14 fráköst. Kobe Bryant var hins vegar maður leiksins með 26 stig, þar af 10 stig í lokaleikhlutanum. Lakers vann sinn 18 sigur í síðustu 19 heimaleikjum sínum. Þetta var þriðji sigur liðsins á Celtics í röð en liðin mættust í úrslitum NBA-deildarinnar árin 2008 og 2010. Hér að ofan má sjá nokkrar myndir AFP frá stemmningunni í Staples-Center í gær.
NBA Mest lesið „Andlitið á mér var afmyndað“ Fótbolti Íslenskt hugvit á að umbylta golfheiminum Golf Uppgjörið: Víkingur - FH 3-0 | Meistararnir ekki í vandræðum í Víkinni Íslenski boltinn Stálheppinn að vera á lífi og gæti snúið aftur með Aroni Fótbolti Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Íslenski boltinn Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Íslenski boltinn Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið Fótbolti Bragðdauft á Old Trafford Enski boltinn Uppgjörið: KA - HK 3-3 | Bikarþynnka í heimamönnum Íslenski boltinn „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Fleiri fréttir Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Sjá meira