Viðskipti innlent

Akstur og hagvöxtur fylgjast að

Í umferðinni Eftir á að koma í ljós hvort snjóþyngsli á nýju ári setja strik í fylgni umferðartalna og hagvaxtar á þessu ári. Fréttablaðið/Pjetur
Í umferðinni Eftir á að koma í ljós hvort snjóþyngsli á nýju ári setja strik í fylgni umferðartalna og hagvaxtar á þessu ári. Fréttablaðið/Pjetur
Mjög sterk fylgni er á milli aksturs og vergrar landsframleiðslu, að því er segir í nýrri umfjöllun Vegagerðarinnar. Verg landsframleiðsla nefnist í daglegu tali hagvöxtur.

„Miðað við þróun aksturs á Íslandi frá árinu 1975 er 96 prósenta fylgni milli þeirrar þróunar og vaxtar landsframleiðslunnar til ársins 2010," segir á vef Vegagerðarinnar og áréttað að víða erlendis séu tölur um heildarakstur og breytingar á akstri nýttar til að meta eða spá í ástand hagkerfisins.

Vegna þess að grunur lék á því að sama væru upp á teningnum hér og annars staðar í heiminum varðandi fylgni milli aksturs og hagvaxtar skoðaði Vegagerðin þær tölur sérstaklega.

„Niðurstaðan sýnir svo ekki verður um villst að óhætt er að segja að mjög mikil fylgni er á milli þessara tveggja þátta." Telur Vegagerðin því að óhætt ætti að vera að nota umferðartölur til þess að áætla hagvaxtarþróun eða spá fyrir um hana, en þær liggja fyrir töluvert löngu áður en staðfestar hagvaxtartölur koma fram hjá Hagstofu. Tölur um hagvöxt árin 2009 og 2010 eru ennþá bráðabirgðatölur.

Telur Vegagerðin því að tölur sem birtast í næsta mánuði um akstur árið 2011 hljóti að vekja athygli.- óká






Fleiri fréttir

Sjá meira


×