Nýr framkvæmdastjóri ráðinn á næstu tíu dögum 22. febrúar 2012 07:00 Hættur Finnbogi Jónsson var framkvæmdastjóri Framtakssjóðsins frá stofnun hans og þar til í byrjun janúar 2012. Fréttablaðið/Stefán
Stjórn Framtakssjóðs Íslands (FSÍ) vonast til þess að ráða nýjan framkvæmdastjóra á næstu dögum. Þetta staðfestir Þorkell Sigurlaugsson, stjórnarformaður FSÍ, í samtali við Markaðinn. Finnbogi Jónsson, sem stýrt hafði sjóðnum frá stofnun hans, lét af störfum í byrjun janúar. Þorkell vill ekki gefa upp hversu margir hafi sótt um framkvæmdastjórastarfið en segir að ekki sé búið að ganga frá ráðningu. „Ég á von á því að þetta klárist innan viku til tíu daga. Það þarf að vanda sig í svona ferli. En það fer að styttast í þessu." FSÍ var stofnsettur í lok árs 2009 af sextán lífeyrissjóðum. Tilgangur hans var að taka þátt í og móta fjárhags- og rekstrarlega endurreisn íslensks atvinnulífs í kjölfar bankahruns. Síðar komu Landsbankinn, sem nú er stærsti einstaki eigandi sjóðsins, og VÍS inn í eigendahópinn. Í endurmati á eignum FSÍ, sem Finnbogi kynnti daginn áður en hann hætti störfum hjá sjóðnum, kom fram að virði þeirra hefði aukist um tæplega 100% á fyrsta fjárfestingaári sjóðsins. Samkvæmt því endurmati var virði eignanna um 33,3 milljarðar króna um mitt ár 2011 og hafði þá aukist um 16,6 milljarða króna á einu ári. - þsj
Fréttir Mest lesið Í samkeppni við Noona með Sinna Neytendur Rauðu flöggin: Þú vilt ekki vinna fyrir svona stjórnanda Atvinnulíf Nammið rýkur áfram upp í verði Neytendur Flýta sér hægt í leit að dagskrárstjóra Viðskipti innlent Kópavogur sýknaður af milljarðakröfum Viðskipti innlent Bein útsending: UTmessan Viðskipti innlent Björgólfur Thor og félagar verða stærstu eigendur Heima Viðskipti innlent Rauð vaxtaviðvörun í á þriðja ár Viðskipti innlent Verð í Bónus hækkað meira en í Krónunni Neytendur Fetar í fótspor Herra hnetusmjörs Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sýn sendir frá sér afkomuviðvörun Flýta sér hægt í leit að dagskrárstjóra Bein útsending: UTmessan Rauð vaxtaviðvörun í á þriðja ár Kópavogur sýknaður af milljarðakröfum Björgólfur Thor og félagar verða stærstu eigendur Heima Fjárfestar tóku vel í uppgjör Festi Fetar í fótspor Herra hnetusmjörs „Held þeir vilji hafa þetta á Samfylkingarpóstinum“ Öllum skerðingum aflétt Arion tilkynnir um lækkun vaxta Mayoral til Íslands Rafn Heiðar ráðinn veitingastjóri Olís Seldu hugvitið og ríkissjóður stórgræðir Íslandsbanki tilkynnir vaxtabreytingu Stór hópur komist nú í gegnum greiðslumat eftir 50 punkta lækkun Tollastríðið gæti haft gríðarleg áhrif á íslenskan efnahag Skagi skráð sem formlegt nafn samstæðunnar Bein útsending: Rökstyðja ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabankinn lækkar vextina um 50 punkta Anna nýr sjóðstjóri hjá SIV eignastýringu Tugmilljarða hagsmunir í húfi Eyrir skuldlaus og með 62 milljarða hlut í JBT Marel Kjarninn farinn úr Heimildinni Frá Sjálfstæðisflokknum til Viðskiptaráðs Gísli Rafn til Rauða krossins Eiga von á um 10 þúsund gestum Fara í steininn ef þeir punga ekki út tveimur milljörðum innan mánaðar Jarðefnaeldsneytisbílar um fimmtungur nýskráðra fólksbíla Ráðin til fyrirtækjaráðgjafar Íslandsbanka Sjá meira