Viðskipti innlent

Skeljungur mögulega á markað

Endurfjármögnun Móðurfélag Skeljungs greiddi upp allar skuldir sínar við Íslandsbanka í febrúar með endurfjármögnun frá Arion banka.
Endurfjármögnun Móðurfélag Skeljungs greiddi upp allar skuldir sínar við Íslandsbanka í febrúar með endurfjármögnun frá Arion banka.
Skeljungur hf. hagnaðist um 629 milljónir króna á árinu 2011, sem er um 200 milljónum krónum minna en árið áður. Rekstrarhagnaður félagsins fyrir afskriftir og fjármagnsliði var 1,7 milljarðar króna og jókst um 754 milljónir króna milli ára. Þetta var tilkynnt á aðalfundi Skeljungs sem fór fram síðastliðinn mánudag.

Skeljungur keypti 34% hlut í færeyska félaginu P/F Magn, sem á og rekur bensínstöðvar og dreifir olíu í Færeyjum, í mars 2012. Í tilkynningu frá félaginu segir að markmiðið með þessum viðskiptum sé að stuðla „að vexti félagsins, auka verðgildi þess og jafnframt að gera það að áhugaverðari fjárfestingarkosti, m.a. vegna mögulegrar skráningar félagsins á Nasdaq OMX á Íslandi".

Skeljungur seldi vörur fyrir 31,6 milljarða króna í fyrra. Það er aukning um 5,2 milljarða króna frá árinu áður. Heildarskuldir félagsins voru 8,8 milljarðar króna og eigið fé þess 3,7 milljarðar króna. Stærstu eigendur Skeljungs eru Svanhildur Nanna Vigfúsdóttir og Guðmundur Örn Þórðarson með samtals 94,7% eignarhlut.

Í tilkynningu vegna aðalfundarins segir að „mikil umbreyting hefur átt sér stað á rekstri og efnahag Skeljungs á undanförnum árum […] Nettó vaxtaberandi skuldir þess eru kr. 4.882 millj. Og hafa lækkað um kr. 6.980 millj. síðan að núverandi eigendur komu að rekstrinum haustið 2008".

Þar kemur einnig fram að Arion banki hafi endurfjármagnað skuldir móðurfélags Skeljungs í febrúar og að félagið hafi við það greitt upp allar skuldir sínar við þáverandi viðskiptabanka, Íslandsbanka. Samkvæmt tilkynningu til fyrirtækjaskráar var hlutafé Skeljungs hækkað um 142 milljónir króna á sama tíma. Hjá Skeljungi starfa 250 manns og félagið starfrækir 67 bensínstöðvar. -þsj






Fleiri fréttir

Sjá meira


×