Tónlist

Fimmtán á Music Mess

Hljómsveitin Tilbury spilar á Reykjavík Music Mess.
Hljómsveitin Tilbury spilar á Reykjavík Music Mess.
Fimmtán hljómsveitir hafa verið bókaðar á tónlistarhátíðina Reykjavík Music Mess sem verður haldin í annað sinn helgina 25. til 27. maí. Meðal þeirra sem hafa bæst í hópinn eru Tilbury, Man Made sem er leidd af Nile Marr, syni Johnny Marr úr The Smiths, söngkonan Laura J. Martin og rokkararnir í Reykjavík!. Áður hafði verið tilkynnt um þátttöku Legend, Benna Hemm Hemm, My Bubba & Mi og fleirum.

Miðaverð fyrir tónleikadagskrá hátíðarinnar á Faktorý er 2.490 krónur og fer miðasala fram á Midi.is. Frítt er á alla tónleika hátíðarinnar á Kexi Hosteli.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.