Tónlist

Erfitt en gaman á Evróputúr

„Þetta verður erfitt en ógeðslega gaman," segir Arnór Dan Arnarson, söngvari Agent Fresco.

Rokksveitin er á leiðinni í mánaðarlangt tónleikaferðalag um Evrópu sem hefst í Þýskalandi 30. maí. Stutt er síðan fyrsta platan, A Long Time Listening, kom út á þeirra eigin vegum í Þýskalandi, Austurríki og Sviss, auk þess sem hún kom út stafrænt á iTunes, Amazon og víðar.

Þetta verður lengsta tónleikaferðalag Agent Fresco til Evrópu til þessa en í fyrra fóru strákarnir þangað í þriggja vikna túr. „Við erum að reyna að byggja upp aðdáendahóp. Hér og þar spilum við á geðveikum stöðum eins og í Berlín og París en svo spilum við líka á smærri búllum. Svo ætlum við að taka nokkrar hátíðar, meðal annars í Tékklandi og Slóvakíu þannig að þetta verður bland í poka," segir Arnór Dan.

Með Agent-liðum í för verða Haraldur Leví Gunnarsson hjá útgáfufyrirtækinu Record Records og hljóðmaðurinn Jóhann Rúnar Þorgeirsson. Auk þess að aðstoða hljómsveitina við ýmislegt ætla þeir að skiptast á að keyra hana á milli staða. Þegar heim verður komið fara strákarnir á fullt í að semja ný lög fyrir næstu plötu sem kemur líklega út á næsta ári. -fb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.