Viðskipti innlent

Vodafone senn skráð á markað

vodafone Vodafone verður þriðja íslenska fyrirtækið sem skráð verður í Kauphöllina frá hruni.FréttablaðiÐ/Stefán
vodafone Vodafone verður þriðja íslenska fyrirtækið sem skráð verður í Kauphöllina frá hruni.FréttablaðiÐ/Stefán
Vodafone á Íslandi hefur samið við fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka um að vinna að undirbúningi skráningar Vodafone í Kauphöllina. Þá mun Íslandsbanki annast sölu á bréfum Framtakssjóðs Íslands í Vodafone en sjóðurinn er aðaleigandi fyrirtækisins í dag.

Í aðdraganda fyrirhugaðrar skráningar er ráðgert að halda almennt hlutafjárútboð þar sem fjárfestum og almenningi gefst kostur á að kaupa hluti í félaginu.

Stefnt er að skráningu Vodafone í Kauphöllina fyrir árslok 2012. - mþl






Fleiri fréttir

Sjá meira


×