Lífið

Flea á Íslandi

Flea virðist hafa skemmt sér vel á Íslandi.
Flea virðist hafa skemmt sér vel á Íslandi.
Vart er þverfótað fyrir erlendum stórstjörnum á landinu um þessar mundir. Fjölmiðlar hafa greint frá ferðum Bens Stiller og Russells Crowe, en þeir fara með aðalhlutverkin hvor í sinni stórmyndinni, sem verða teknar upp að hluta hér á landi á næstunni.

Í gær birti svo enginn annar en Flea, bassaleikari hljómsveitarinnar Red Hot Chili Peppers, mynd af sér á Íslandi á vefsíðunni Twitter. Skilaboðin sem fylgdu myndinni voru stutt en hnitmiðuð: „Ó Ísland". Það er engin furða að landsmenn spyrji hvað í ósköpunum sé að gerast? -afb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.