Tónlist

Safnar fyrir sólóplötu

Tónlistarkonan óskar eftir styrkjum á Pledgemusic.com.
Tónlistarkonan óskar eftir styrkjum á Pledgemusic.com.
Tónlistarkonan Ólöf Arnalds hefur óskað eftir styrkjum á vefsíðunni Pledgemusic.com vegna framleiðslu á þriðju plötu sinni, Sudden Elevation, sem kemur út í febrúar.

Þeir sem styrkja Ólöfu geta á móti fengið ýmislegt fyrir sinn snúð, þar á meðal áritaða plötu og VIP-miða á tónleika hennar. Athygli vekur að fimmtán prósent þess fjár sem safnast renna til Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, Unifem. Með styrkjabeiðninni fetar Ólöf í fótspor Péturs Ben því stutt er síðan tónlistarmaðurinn óskaði eftir styrkjum vegna sinnar plötu á annarri vefsíðu, Alpha.karolinafund.com.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.