Um sextíu þúsund sáu Svartur á leik 19. desember 2012 06:00 @tala:63.000 Svartur á leik
Svartur á leik í leikstjórn Óskars Þórs Axelssonar er vinsælasta íslenska kvikmyndin af þeim fimm sem voru frumsýndar árið 2012. Alls sáu hana tæplega 63 þúsund manns í bíó, sem er næstum því jafnmikið og allar hinar til samans. Í öðru sæti er Djúpið í leikstjórn Baltasars Kormáks, sem tæplega 50 þúsund hafa séð, en sýningar á henni standa enn yfir. Næst á eftir kemur Ávaxtakarfan sem Sævar Guðmundsson leikstýrði. Um þrettán þúsund sáu þessa hressilegu barnamynd. Í fjórða sætinu er spennutryllirinn Frost í leikstjórn Reynis Lyngdals sem aðeins rúmlega fimm þúsund manns sáu og í því fimmta og síðasta er hasarmyndin Blóðhefnd í leikstjórn Ingós Ingólfssonar sem afar fáir sáu, eða um fimm hundruð Íslendingar. Vinsælasta erlenda myndin og um leið vinsælasta mynd ársins var Skyfall. Rúmlega 78 þúsund manns hafa séð þessa nýjustu Bond-mynd, sem enn er verið að sýna. Hún er jafnframt vinsælasta Bond-mynd sögunnar á Íslandi. Í öðru sætinu er franska gamanmyndin Intouchables sem tæp 65 þúsund manns sáu og þar á eftir kemur Dark Knight Rises sem tæplega 64 þúsund manns sáu. Hasarmyndin The Avengers er fjórða vinsælasta erlenda mynd ársins með rúmlega fimmtíu þúsund áhorfendur og um tuttugu þúsund færri sáu þá næstu, The Hunger Games. Hin hálfíslenska Contraband, sem Baltasar Kormákur leikstýrði, naut einnig mikilla vinsælda. Tæp þrjátíu þúsund manns sáu hana, en Mark Wahlberg var í aðalhlutverki og Ólafur Darri Ólafsson í lítilli rullu. Það er svipaður fjöldi og sá upphaflegu myndina sem Contraband var gerð eftir, Reykjavík Rotterdam, eða tæplega 27 þúsund manns. Samkvæmt upplýsingum frá Smáís, Samtökum myndrétthafa á Íslandi, er Contraband einnig í einu af fimm efstu sætunum yfir þær myndir sem mest hefur verið halað niður ólöglega á netinu í heiminum.- fbMynd/bjarni gríms
Lífið Menning Mest lesið Færeyjaferð endaði á Hotel Cabin: „Búnar að hlæja viðstöðulaust síðan við fórum upp á völl“ Lífið Bannað að ræða fótbolta og heimilisfjármálin á stefnumótum Makamál Smakkaði skötu í beinni: „Sjitturinn, kött!“ Matur Falska söngkonan á leið í meðferð Lífið Íslendingar tilnefndir til Emmy-verðlauna Bíó og sjónvarp Eva segir lífið betra með Kára Stefáns Lífið „Unun að troðið sé á manni þegar svona er“ Lífið Gísli Pálmi í fótbolta með Barry Keoghan Lífið Erfið lífsreynsla að þurfa að yfirgefa heimili sitt Lífið Hélt niðri í sér hlátrinum yfir fölskum þjóðsöngnum Lífið Fleiri fréttir Kanónur með listræna þrennu á Flateyri „Leiðin verður að vera óviss svo vel sé“ „Ég lofa miklu blóði“ Gera grín að bransanum með „virtustu verðlaunum heims“ Fjöldamet á stærstu listasýningu í sögu Hornafjarðar „Hluti af heild sem við skiljum ekki“ Magnús Geir endurráðinn þjóðleikhússtjóri „Ef ég væri einmana myndi ég ganga í Sjálfstæðisflokkinn“ Myndaveisla: Níu líf of stórkostleg fyrir eftirsjá Þau eru tilnefnd til Ísnálarinnar í ár Hvað eigum við að kalla eiginmann forseta? Sjá meira