Innlent

Í fyrra entust kjötbirgðirnar fram í janúar

Við vinnslu á heimstíminu Það verður nóg að gera við veiðar og vinnslu en Hrafnreyður ætlar að auka framboð á hrefnu. Mynd/Gunnar Bergmann
Við vinnslu á heimstíminu Það verður nóg að gera við veiðar og vinnslu en Hrafnreyður ætlar að auka framboð á hrefnu. Mynd/Gunnar Bergmann
Hrafnreyður ehf. hefur uppi áform um að auka enn frekar hrefnuveiðar. Í fyrra voru veiddar um fimmtíu hrefnur en að sögn Gunnars Bergmanns Jónssonar framkvæmdastjóra er stefnt að því að veiða um áttatíu dýr í ár. Markmiðið er að neytendum standi hrefnukjöt til boða allan ársins hring.

„Við erum núna að safna kjöti og ætlum svo að þíða það á viku eða tveggja vikna fresti svo við getum sett marinerað hrefnukjöt á helstu sölustaði allan ársins hring," segir framkvæmdastjórinn. Hann segir að birgðir hafi aðeins enst fram í janúar í fyrra fyrir helstu sölustaði.

Aðeins hefur dregið úr vinsældum hrefnukjöts sem var til dæmis vinsælasti vöruliðurinn í grillmat hjá Kaupási í fyrra. Nú skipar hrefnukjötið þriðja sætið á þessum sölulista. Samtals er búið að selja um eitt og hálft tonn í verslunum Krónunnar en Kaupás rekur þær. Guðmundur Marteinsson, framkvæmdastjóri Bónuss, segir að þar sé hrefnukjötið ekki meðal þriggja efstu vöruliða en hafi þó selst sæmilega, eins og hann kemst að orði.

Guðmundur segist sáttur við þessar tölur. „Ef við erum á meðal þeirra efstu og sjáum þar með að hrefnukjötið er að festa sig í sessi á grillborði landsmanna þá erum við mjög sáttir. Þetta hefur selst vel þó við höfum ekkert auglýst."- jse




Fleiri fréttir

Sjá meira


×