Menning

Barnadagur í Viðey á sunnudag

Sunnudaginn 29. júlí verður barnadagurinn haldinn hátíðlegur í Viðey. Sú skemmtilega hefð hefur skapast í Viðey að bjóða yngstu meðlimi fjölskyldunnar sérstaklega velkomna og bjóða skemmtun og afþreyingu sem er þeim að skapi.

Trúðar heimsækja Viðey og leika við börnin og Lalli töframaður mun bæði sýna æsileg töfrabrögð á sviði og ganga um svæðið og búa til furðuskepnur í galdrablöðrum. Sveppi og Villi skemmta börnunum af sinni alkunnu snilld kl.15:30.

Viðey iðar af lífi og náttúran er í fullum skrúða í júlí. Því er upplagt að rölta um móana og tína saman fallegan blómvönd fyrir villiblómavandarkeppnina sem haldin er á Barnadaginn. Veitt eru vegleg verðlaun fyrir fallegasta vöndinn.

Margt er að sjá og ýmislegt sem þarf að rannsaka og því er tilvalið að taka sigti eða háf með í Viðeyjarferðina, svo hægt sé að skoða allar furðuskepnurnar og fjársóðina sem finnast í flæðarmálinu. Hestaleigan Laxnes hefur slegið í gegn í Viðey í sumar og verður hún opin á barnadaginn. Jafnframt verður yngstu börnunum boðið að bregða sér á bak og teymt undir þeim spottakorn í fylgd með mömmu eða pabba.

Fyrsta ferð i áætlun til Viðeyjar frá Skarfabakka er kl. 11:15 og siglt er á klukkustundar fresti, korter yfir heila tímann allan daginn. Ferjutollur er kr. 1000.- fyrir fullorðna, kr. 500.- fyrir 7-15 ára og ókeypis fyrir 6 ára og yngri.



Dagskrá Barnadags:

11:30 – 16:30 Nýr og spennandi matseðill í Viðeyjarstofu m.a. grillaðar pylsur

12:15 – 13:30 Trúðarnir taka ferjuna út í Viðey þar sem þeir leika og sprella

13:00 Hestar teymdir undir börnum við hestagerðið

13:15 – 15:30 Lalli töframaður galdrar furðudýr og töfrar ýmislegt upp úr hatti sínum

14:45 – 15:00 Dómnefnd tilkynnir úrslit í villiblómvandakeppni

15:00 – 15:30 Barna- og fjölskylduguðsþjónusta í Viðeyjarkirkju.

15:30 – 16:00 Barnaskemmtun við Viðeyjarstofu. Sveppi og Villi leika á als oddi!






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.