Körfubolti

Jón Arnór og Haukur Pálsson töpuðu báðir leikjum sínum á Spáni

Stefán Árni Pálsson skrifar
Haukur Pálsson og Jón Arnór Stefánsson
Haukur Pálsson og Jón Arnór Stefánsson Mynd / Karfan.is
Herbalife Gran Canaria vann öruggan sigur, 74-56, á CAI Zaragoza í spænsku úrvalsdeildinni í körfuknattleik en Jón Arnór Stefánsson leikur með Zaragoza.

Jón Arnór átti ágætan leik í dag og skoraði átta stig í þær 23 mínútur sem leikmaðurinn var inná vellinum.

Haukur Pálsson var einnig í eldlínunni með liði sínu Manresa Assignia gegn Unicaja en Haukur og félagar töpuðu leiknum 88-70.

Haukar náði sér ekki á strik og skoraði ekki stig í leiknum en hann lék alls í ellefu mínútur. Manresa Assignia er í næstneðsta sæti deildarinnar en Zaragoza er í því 11.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×