"Alveg lætur eins og flón, listamannalauna-Sjón“

Viðbrögðin létu ekki á sér standa; ummælin kölluðu fram gríðarlega reiði, ekki síst meðal listamanna en fremstur í flokki fór skáldið Sjón sem vandaði Eyjamönnum ekki kveðjurnar, en þangað á Grímur ættir að rekja. „Besta fólkinu var rænt af Tyrkjum og afkomendur þeirra skárstu sem eftir urðu fluttu svo upp á land í gosinu. Restin situr eftir og hefst þar við útgerðarmannadekur og brekkusöng,“ skrifaði Sjón meðal annars.
Grímur segir, nú rúmum sólarhring eftir að ballið byrjaði, að það mætti halda að hann hafi lagt til að það væri algerlega skrúfað fyrir og menningunni hent fyrir björg. Sú var ekki meining hans. Og merkilegt að menn skuli beintengja list og ríkisstyrki, að ríkisstyrkir séu frumforsenda listarinnar. „En, þetta virðist vera algerlega ósnertanlegt fólk. Eins og gengur. Til dæmis ef einhverjum verður það á að tala um femínisma eða samkynhneigð með þeim hætti að ekki þyki passa -- þá eru menn skotnir á færi."
Grímur segir viðbrögðin í sjálfu sér ekki hafa komið sér á óvart. „En, það er kannski ekkert skrítið að pólitíkusar þora lítið að krukka í þennan geira. Þetta er hávær þrýstihópur og þekkt andlit sem láta að sér kveða."
Og, talandi um að kveða. Grímur hefur ákveðið að svara í bundnu máli og hann sendi Vísi kveðskapinn. „Já, sem ég klambraði þessu saman sjálfur. Án þess að fá nokkra styrki. Þeir leynast víða, listamennirnir."
Og hér koma vísur Gríms:
Ekki Sjón að sjá
Alveg lætur eins og flón,
eys úr skálum bræði.
Listamannalauna Sjón
líklega fékk æði.
Eyjamenn hann yfir jós
atyrðum og blóti.
Lítið sér hann listaljós
í ljótu Eyjadóti.
Brekkusöng þar bast og tvist
bæjarbúar kyrja.
Eru Eyjalög ei list?
Ágætt er að spyrja.
Aumingjar og asnar nú
í Eyjum eru í hrönnum.
Björg úr sæ þeir draga í bú
og borga listamönnum.
Alvitlaust það Eyjastóð
sem aflar tekna þjóðar, pent.
Leggur til í listasjóð
líklega ein tí-prósent.
Örfáir samt íbúar
eru á þessum standi.
Asnast þar til útgerðar
og afla draga að landi
Ef engan yrði afla að fá
og enginn yrði gróði.
Lítið myndi leka þá
í listamannasjóði.
Aumt ástandið yrði þá.
Enginn myndi rokka.
Og ekki yrði Sjón að sjá
inni á Kaffi Mokka
Ekki mikið yrði tjón
og engin almenn raunin.
Skert þótt yrðu við hann Sjón
skrambans listalaunin.
Tengdar fréttir

Óttaslegnir listamenn
Kolbrún Halldórsdóttir, forseti BÍL- Bandalags íslenskra listamanna, hefur verulegar áhyggjur af því að listir og menning beri skarðan hlut frá borði þegar fyrsta fjárlagafrumvarp nýrrar ríkisstjórnar lítur dagsins ljós.

Vill niðurskurð útgjalda til lista og menningar
Grímur Gíslason, miðstjórnarmaður í Sjálfstæðisflokknum, segist gera þá kröfu á hendur sínum mönnum í ríkissjórn að þeir skeri niður fjárframlög til menningarmála. Vigdís Hauksdóttir, formaður fjárlaganefndar, segir að það muni liggja fyrir 1. október hver hnífurinn fer á loft.

Stöndum vörð um skapandi atvinnugreinar
Ekki líður á löngu þar til fyrsta fjárlagafrumvarp nýrrar ríkisstjórnar lítur dagsins ljós. Þess er nú beðið með eftirvæntingu í opinberum stofnunum og meðal þeirra sem reiða sig á opinber framlög

Sjón hraunar yfir Vestmannaeyinga
Telur besta fólkinu hafa verið rænt af Tyrkjum og restina sitja eftir við útgerðarmannadekur og brekkusöng.