Brynjar Björn er hættur í fótbolta - ætlar bara að þjálfa Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. nóvember 2013 19:21
Brynjar Björn Gunnarsson er orðinn aðstoðarþjálfari Stjörnunnar í Pepsi-deild karla í fótbolta og hefur tekið þá endanlegu ákvörðun að setja fótboltaskóna upp á hillu. Hörður Magnússon hitti Brynjar Björn á æfingu með Stjörnunni og setti saman innslag í kvöldfréttir Stöðvar tvö. „Það er engin eftirsjá að hætta að spila. Ég er mjög ánægður með að hafa lokað ferlinum eins og ég gerði eða með því að vinna titil vestur í bæ eins og við ætluðum okkur. Því markmið var náð þótt að það hefði verið gaman að spila eitt ár í viðbót," sagði Brynjar Björn Gunnarsson við Hörð Magnússon en Brynjar segir að það hafi ekki verið hægt að enda ferillinn betur en að verða Íslandsmeistari með KR. Brynjari var ekki boðin álíka staða hjá KR og hjá Stjörnunni þar sem hann verður aðstoðarþjálfari Rúnars Páls Sigmundssonar. „Ég var með samning hjá KR og það þurfti að leysa það mál. Félögin gerðu það sín á milli. Ég var búinn að segja það fljótlega eftir mót að ég ætlaði að spila áfram í KR. Svo er bara fótboltinn þannig að maður veit ekki alveg hvað er handan við hornið," sagði Brynjar Björn. Hvað ef Stjarnan byrjar illa á næstu leiktíð og það verður leitað til Brynjars um að taka skóna fram aftur? „Það er útilokað. Ég gaf það út við KR-inga og við Stjörnuna og fleiri að ef ég hefði ætlað að spila áfram þá hefði ég bara gert það út í KR. Ég kem hingað í Stjörnuna sem þjálfari og það mun ekki breytast," sagði Brynjar Björn. Það er hægt að sjá allt viðtal Harðar við Brynjar Björn með því að smella á tengilinn hér fyrir ofan.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Ísland mætir Kósovó í sérstöku umspili Fótbolti Dukic harðorður gagnvart CrossFit: Fyrirtæki sem virðir ekki mannslíf Sport Eina félagið án útlendinga: „Þurfum vettvang fyrir unga leikmenn“ Körfubolti Írarnir hans Heimis mæta Búlgörum Fótbolti „Margir með konur en eru kannski einir í útlöndum“ Körfubolti Missti stjórn á sér og gaf stig: „Veit að þetta er ekki mjög sænsk hegðun“ Sport Ed Sheeran hjálpaði Ipswich að ná í leikmann rétt fyrir Taylor Swift tónleika Enski boltinn Lewandowski fékk ekki að fara til Man. Utd Enski boltinn Allt lítur vel út hjá Pablo Punyed Íslenski boltinn Sjöunda og stærsta Icebox-kvöldið: „Klikkað að sjá að Ísland geti þetta“ Sport Fleiri fréttir Allt lítur vel út hjá Pablo Punyed Ágúst Orri aftur heim í Breiðablik Systur sömdu á sama tíma Katrín áfram í Kópavogi Bjarni áfram hjá KA Þórdís Elva semur við Þróttara Ritstjóri 433.is tekinn við Dalvík/Reyni Birkir Valur yfirgefur HK Enn kvarnast úr liði Vestra Sameina kraftana tólf árum síðar: „Sami texti í samningnum“ Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Rúnari Páli treyst fyrir endurreisn Gróttu Hermann fer inn í hlýjuna: „Eitt af draumastörfunum sem þú færð“ Blysin kostuðu 200 þúsund en engin refsing vegna brettamálsins Skagamenn sökuðu mbl um „smellubeitu“ en fá samt sekt „Áran yfir Meistaravöllum er ólýsanleg“ Kristófer áfram í Kópavogi Höttur hlaut aftur langhæsta styrkinn: „Virkilega góð lyftistöng“ Damir á leið til Asíu Vill vera áfram í Kópavogi en útilokar ekkert Lá nánast við skilnaði fyrir úrslitaleikinn „Velkomin í dal draumanna“ Fram og Reykjavíkurborg semja um frekari framkvæmdir í Úlfarsárdal Fer til Eyja og fetar í fótspor föður síns Hermann Hreiðars tekur við HK Farinn til Tene og er ekkert að stressa sig Hafnaði uppeldisfélaginu og verður áfram í Mosfellsbæ Sunderland meðal þeirra liða sem horfa til Benóný Breka Oliver kveður Breiðablik „Skil vel að KR-ingar séu með vatn í munninum yfir því sem koma skal“ Sjá meira