Treyjan hans Shaq snýr öfugt Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. apríl 2013 23:30 Treyjurnar sem hanga í Staples Center. Treyja Shaq sker sig úr. Mynd/AP
Forráðamenn Los Angeles Lakers gerðu sig seka um klaufaleg mistök þegar þeir hengdu treyju Shaquille O'Neal upp í rjáfur í Staples Center höllinni í Los Angeles í vikunni. Það hefur ekki fengist staðfest hvort hér sé á ferðinni grín hjá hinum skemmtilega Shaquille O'Neal en það sem hefur verið staðfest er að treyja Shaq, sem hangir í loftinu í Staples Center, snýr öfugt. Shaq var heiðraður í hálfeik á leik Los Angeles Lakers og Dallas Mavericks í NBA-deildinni í körfubolta á þriðjudaginn þegar Lakers-menn hengdu upp treyju með númerinu hans, 34. Þegar menn fóru að skoða betur treyjuna hans kom í ljós að hún snýr fram en ekki aftur eins og treyjur alla goðsagnanna við hliðina. O'Neal nafninu hafði verið skellt framan á treyjuna en eins og kunnugt er þá spila NBA-leikmenn með nöfnin sín á bakinu. Forráðamenn Los Angeles Lakers hafa viðurkennt mistök sín og eru að vinna í því að koma "réttri" treyju á sinn stað. Þangað til sker treyja Shaquille O'Neal sig svo sannarlega út meðal þeirra goðsagna í sögu Los Angeles Lakers sem hafa verið heiðraðir með þessum hætti. Shaquille O'Neal lék með Los Angeles Lakers frá 1996 til 2004 og varð meistari með liðnu 2000, 2001 og 2002. Hann var kosinn besti leikmaður NBA-deildarinnar 2000 og var stigakóngur sama ár.Þessir eiga treyju hangandi í Staples Center: 13 - Wilt Chamberlain (1968–1973) 22 - Elgin Baylor (1958–1971) 25 - Gail Goodrich (1965–1968, 1970–1976) 32 - Magic Johnson (1979–1991, 1996) 33 - Kareem Abdul-Jabbar (1975–1989) 34 - Shaquille O'Neal (1996–2004) 42 - James Worthy (1982–1994) 44 - Jerry West (1960–1974) 52 - Jamaal Wilkes (1977–1985)
NBA Mest lesið Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti ÍBV og Grótta með sigra Handbolti Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Fótbolti Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Fótbolti Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Handbolti Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Íslenski boltinn Fleiri fréttir Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Sjá meira