NBA: New York, Indiana, OKC og Memphis komin áfram Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. maí 2013 11:00 Carmelo Anthony og félagar fagna í nótt. Mynd/NordicPhotos/Getty
Fjögur lið tryggðu sér sæti í 2. umferð úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta í nótt með því að vinna sigur í sjötta leik einvíga sinna og koma þar með í veg fyrir að það yrði oddaleikur á sunnudaginn. New York Knicks, Indiana Pacers, Oklahoma City Thunder og Memphis Grizzlies unnu öll einvígi sín 4-2 og eru komin áfram.Carmelo Anthony var með 21 stig fyrir New York Knicks sem vann 88-80 útisigur á Boston Celtics en Boston-menn voru búnir að vinna tvo leiki í röð. New York vann fyrsta leikhlutann 24-10 og komst mest 26 stigum yfir en Boston setti smá spennu í þetta með því að skora 20 stig í röð í fjórða leikhluta. Jeff Green var með 21 hjá Boston og Kevin Garnett skoraði 15 stig og tók 10 fráköst. Paul Pierce skoraði 14 stig en hitti aðeins úr 4 af 18 skotum sínum.New York mætir Indiana Pacers í næstu umferð og er fyrsti leikurinn annað kvöld. Indiana Pacers vann 81-73 sigur á Atlanta Hawks þar sem George Hill og David West skoruðu báðir 21 stig. Roy Hibbert var með 17 stig og 11 fráköst. Atlanta átti góðan endasprett og náði að minnka muninn í þrjú stig, 76-73, þegar 2:13 mínútur voru eftir. Indiana-liðið kláraði hinsvegar leikinn og vann þar með einvígið 4-2.Zach Randolph skoraði 23 stig fyrir Memphis Grizzlies í 118-105 sigri á Los Angeles Clippers áður en hann var rekinn út úr húsi. Clippers vann fyrstu tvo leikina en Memphis svaraði með því að vinna fjóra leiki í röð. Mike Conley var með 23 stig og 7 stoðsendingar og Tony Allen skoraði 19 stig fyrir Memphis-liðið. Matt Barnes kom með 30 stig og 10 frákast inn af bekknum hjá Clippers og Chris Paul var með 28 stig og 8 stoðsendingar.Memphis mætir Oklahoma City Thunder sem komst áfram eftir 103-94 sigur á Houston Rockets. Rockets-liðið var búið að vinna tvo leiki í röð og minnka muninn í 3-2 en tókst ekki að tryggja sér oddaleik. Kevin Durant var með 27 stig, 8 fráköst og 6 stoðsendingar og Kevin Martin kom með 25 stig inn af bekknum. James Harden skoraði 26 stig fyrir Houston og Chandler Parsons var með 25 stig.
NBA Mest lesið Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti ÍBV og Grótta með sigra Handbolti Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Fótbolti Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Handbolti Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Fótbolti Töpuðu með ellefu í Tékklandi Handbolti Fleiri fréttir Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Sjá meira