Tíska og hönnun

Best klæddar á BRIT

Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar
BRIT tónlistarverðlaunin voru haldin með pompi og prakt í London í gærkvöldi, á sama tíma og Íslensku tónlistarverðlaunin voru veitt. Eins og venjulega á slíkum stórviðburðum var rauði dregillinn fullur af skærustu stjörnum tónlistarbransans í sínu allra fínasta pússi. Hér eru þær best klæddu að mati Lífsins.

Taylor Swift stal senunni í elegant kjól frá Elie Saab.
Alexa Chung kemst í einföldum samfestingi frá Valentino.
Rita Ora í fölbleikum kjól frá Ulyana Sergeenko.
Rebecca Ferguson í fallegum kjól svörtum kjól með blúndu.
Fyrirsætan Jourdan Dunn í kjól frá Balmain.
Söngkonan Paloma Faith í skrautlegum kjól frá Dolce & Gabbana.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.