Tvær ákærur voru sameinaðar hinu svokallaða Stokkseyrarmáli við þingfestingu í gær, önnur á hendur Stefáni Loga Sívarssyni og hin á hendur Stefán Blackburn.
Stefán Blackburn er ákærður fyrir að hafa skallað mann fyrir utan skemmtistaðinn Faktorý í sumar og nefbrotið hann og auk þess fyrir líkamsárás af gáleysi með því að aka Bústaðaveginn á ofsahraða, undir áhrifum fíkniefna, og lenda í árekstri sem varð til þess að hinn bíllinn valt og ökumaður hans hlaut mörg rifbeinsbrot og áverka á lunga. Hann tók sér frest til að taka afstöðu til ákærunnar í gær.
Stefán Logi er ákærður fyrir að skalla og bíta fyrrverandi tengdaföður sinn í mars síðastliðnum og dælda bíl hans.
Stokkseyrarmálið, snýst um tvær hrottafengnar líkamsárásir og langvinnar pyntingar í sumar, en allir fimm sakborningarnir í því máli neituðu sök fyrir hérðsómi í gær eins og kom fram á Vísi.

