„Orkuþjóðin“ ætlar að stórauka raforkusölu til Evrópu Magnús Halldórsson skrifar 18. janúar 2013 09:22 Norðmenn eru stórhuga þegar kemur að orkumálum, en Jens Stoltenberg skilgreinir Noreg sem "orkuþjóð“ sem hafi skyldum að gegna fyrir umheiminn.
Norsk stjórnvöld telja að sala á raforku um sæstrengi til Evrópu geti orðið afar ábatasamur atvinnuvegur fyrir Noreg á næstu árum, og ætla sér að stórauka raforkuvinnslu og sölu. Jens Stoltenberg tilkynnti um þetta í ávarpi á ársfundi Samtaka atvinnulífsins í Noregi, NHO, þar sem hann flutti erindi auk olíumálaráðherrans, Ole Borten Moe, ásamt fleirum. Stoltenberg sagði Noreg vera orkuþjóð, og að landið hefði skyldum að gegna gagnvart umheiminum á þeim forsendum. Orkumál væru áhugaverð, ekki síst þar sem umhverfismál væru stór hluti af þeim. Staðan í orkubúskap heimsins væri hins vegar með þeim hætti, að auka þyrfti orkuframleiðslu, en um leið að draga úr mengun og neikvæðum áhrifum á loftslag. „Þetta er stórt og mikið mál [...] Noregur getur lagt mikið til," sagði Stoltenberg, og vísaði til stórhuga hugmynda orkufyrirtækja í Noregi, m.a. Statkraft, um að leggja sæstrengi til Evrópu, þar á meðal þrjá strengi um Eystrasalt. Nú þegar hefur fyrirtækið lagt streng frá Noregi til Hollands, sem reyndist miklu ábatasamari heldur en áætlanir gerðu ráð fyrir, þar sem miklu hærra verð fékkst fyrir raforkuna. Á teikniborðinu eru allt að sex sæstrengir, á vegum Statkraft, og er uppbygging þeirra nú á hönnunar- og rannsóknarstigi. Horft er sérstaklega til vikjunar vatnsorku, vindorku og lífmassa í þessu samhengi. Þá hyggjast Norðmenn á þessu ári bjóða út tvö ný leyfi til olíuleitar í norskri lögsögu, í Barentshafi og við Jan Mayen. Það verður í fyrsta skipti í nítján ár, eða frá því 1994, sem það verður gert en útboðið verður kynnt og talað fyrir því í norska Stórþinginu fyrir páska, að því er fram kom í máli Borten Moe. Mikill uppgangur einkennir nú stöðu efnahagsmála í Noregi, og helst þar margt í hendur. Olíuiðnaðurinn hefur gengið vel, sjávarútvegur er í mikilli sókn og norska ríkið hefur stóraukið opinberar framkvæmdir, þar á meðal á sviði samgöngumannvirkja. Þar vegur ekki síst þungt að staða opinbera fjármála í Noregi er með allt öðrum hætti en hjá nánast öllum öðrum vestrænum ríkjum. Ríkissjóður Noregs er nánast skuldlaus, en með miklar skuldbindingar í gegnum víðtækt eignarhald á hinum ýmsum fyrirtækjum í norskuefnahagslífi, svo sem Statoil(68%), DNB (34%) og Norsk Hydro (40%). Þessu óviðkomandi er síðan norski olíusjóðurinn, en eignir hans eru metnar á tæplega 660 milljarða Bandríkjadala, eða sem nemur tæplega 85 þúsund milljörðum króna. Til samanburðar þá er landsframleiðsla á Íslandi um 1.620 milljarðar. Stærð sjóðsins nemur um 2,5 x árlegri landsframleiðslu Noregs, en eignir hans eru að 95 prósent leyti bundnar í eignum utan Noregs (sjá má pistil blaðamanns um stöðu mála í Noregi, hér). Sjá má erindi Stoltenberg á fyrrnefndum fundi NHO hér. Erindi olíumálaráðherrans, Borten Moe, sem kom hingað til lands á dögunum, má sjá hér.
Mest lesið Gengu langt í að vinna að lausn þótt bíllinn væri ekki í ábyrgð Neytendur Átta sagt upp hjá Arion banka Viðskipti innlent „Fjárfestar eru bara venjulegt fólk“ Atvinnulíf „Myndi alveg segja að hjartað í mér hafi verið í buxunum“ Atvinnulíf Þrálát verðbólga og hægari vöxtur geti skapað áskoranir fyrir fjármálakerfið Viðskipti innlent Telur vaxtahækkanir viðskiptabankanna brattar Viðskipti innlent Hagnaður félags Björns Braga dróst verulega saman Viðskipti innlent Icelandair hækkað um ríflega fjórðung Viðskipti innlent Spá verðbólgu undir fjórum prósentum á næsta ári Viðskipti innlent Kærasta rafmyntamógúls í fangelsi vegna FTX-svikanna Viðskipti erlent Fleiri fréttir Kærasta rafmyntamógúls í fangelsi vegna FTX-svikanna Stýrivextir lækkaðir í Bandaríkjunum í fyrsta sinn í fjögur ár Tupperware lýsir yfir gjaldþroti Snúa við dómnum og dæma Bonnesen í fangelsi Gera Apple að greiða tvær billjónir í skatta Skaut samstundis niður tillögur um efnahagslega björgun Evrópu Bein útsending: Apple kynnir nýjustu græjurnar Hætta steðjar að lífsgæðum Evrópubúa Volvo heykist á algjörri rafvæðingu árið 2030 Þessari rafmagnsflugvél er ætlað að flytja 90 farþega Zuckerberg harmar að hafa látið undan þrýstingi Bidens Breska stjórnin samþykkir að efla London City-flugvöll Sádar sagðir byrjaðir að skrúfa fyrir kranann Susan Wojcicki er látin Ummæli Trump vekja áhyggjur af sjálfstæði seðlabanka Hlutabréfin ruku aftur upp degi eftir hrun Google beið lægri hlut í risavöxnu einokunarmáli Hrun í hlutabréfamörkuðum ytra Sjá meira