Kínverjar senda flutningaskip norðausturleiðina í kjölfar Snædrekans 13. mars 2013 06:36
Kínverskt skipafélag ætlar að senda fullhlaðið flutningaskip frá Kína til Evrópu í gegnum Norður-Íshafið eða norðausturleiðin meðfram Rússlandi og Noregi í sumar. Skipið mun fara sömu leið og ísbrjóturinn Snædrekinn fór síðasta sumar en ísbrjóturinn kom hingað til lands í lok þeirrar siglingar. Í frétt um málið á Reuters segir að góður árangur Snædrekans sé grundvöllur þess að skipafélagið ætli að senda eitt af flutningaskipum sínum þessa leið í sumar. Áætlað er að reglulegar siglingar flutningaskipa frá Kína verði á þessari leið strax árið 2020. Norðausturleiðin milli Kína og Evrópu er rúmlega 5.000 kílómetrum styttri en núverandi siglingaleið í gengum Súez skurðinn. Því er hægt að spara mikinn siglingartíma og eldsneyti með því að fara hana. Í hinni sögulegu för Snædrekans síðasta sumar voru tveir Íslendingar um borð í ísbrjótinum. Egill Þór Níelsson gistifræðimaður við Heimskautastofnun Kína var með í förinni frá upphafi. Ingibjörg Jónsdóttir dósent við Háskóla Íslands var með um borð þegar ísbrjóturinn hélt aftur heim á leið frá Íslandi yfir Norðurpólinn og til Kína . Vísindamennirnir um borð í Snædrekanum söfnuðu saman aragrúa upplýsinga um norðausturleiðina þann rúma mánuð sem siglingin tók frá Qingdao í Kína til Reykjavíkur.
Mest lesið Íslensk kona í haldi: Hótelherbergi á Tenerife þakið blóði Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Breytinga að vænta á fylgi Flokks fólksins Innlent „Girtu þig nú í brók og horfstu í augu við sjálfan þig“ Innlent Boeing þota hrapaði í garð íbúðarhúss Erlent Lögreglumenn furðuðu sig á vígahnetti Innlent Sást á öryggismyndavélum þegar Diego var numinn á brott Innlent Dagur hvetur alla Sjálfstæðismenn til að strika sig út Innlent Á bak við auglýsingarnar um Dag en skráður í Samfylkinguna Innlent Dómsmál setur áform Heidelberg í uppnám Innlent Fleiri fréttir Ísrael og Hezbollah sögð við það að gera vopnahlé Ólöglegir og löglegir innflytjendur afar uggandi um framtíð sína Óvæntar niðurstöður í fyrri umferð kosninga í Rúmeníu Scholz verður kanslaraefni Jafnaðarmanna Konur í mestri hættu innan veggja heimilisins Boeing þota hrapaði í garð íbúðarhúss Hezbollah svarar Ísrael með umfangsmikilli loftárás Ráku háttsettan herforingja sem sakaður var um lygar Ása hyggst selja húsið og flytur ásamt börnum sínum „Þetta var mjög skrýtin stemning“ Vargöldin á Haítí versnar hratt Tryggja þróunarríkjum 42 billjónir á ári með samkomulagi á COP29 Uppnám á COP29 er fulltrúar þjóða strunsuðu út Vill einn af höfundum „Project 2025“ við stjórn fjárlagaskrifstofu Jöfnuðu fjölbýlishús við jörðu um miðja nótt Hakkarar komu sér fyrir í kerfum fjölda fjarskiptafyrirtækja Ákærður fyrir að nauðga og myrða þrettán ára stúlku Leita móður ungabarns sem fannst látið á víðavangi Styrkja loftvarnir Norður-Kóreu fyrir hermenn og vopn Bolsonaro og félagar kærðir fyrir valdaránstilraun Trump-liðar heita aðgerðum gegn sakamáladómstólnum Útlit fyrir að Scholz leiði flokk sinn til kosninga þrátt fyrir óvinsældir Eigandi gistiheimilis handtekinn í gengslum við metanóleitrun Kostnaðurinn við krýningu Karls konungs 13 milljarðar króna Pam Bondi kemur í stað Matt Gaetz Segir notkun eldflaugarinnar fela í sér stigmögnun átaka Bættu krakkpípu við styttu Nínu Sæmundsson í Los Angeles Gaetz ætlar sér ekki að verða dómsmálaráðherra Tóku tíu úkraínska fanga af lífi Meina fyrstu trans þingkonunni að fara á kvennaklósettið Sjá meira