Tíska og hönnun

Rihanna klæðist sérhönnuðum flíkum frá Givenchy á tónleikaferðalagi

Riccardo Tisci, yfirhönnuður tískuhússins Givenchy, er persónulega búin að sérhanna flíkur fyrir poppstjörnunna Rihönnu til að klæðast á nýjasta tónleikaferðalagi sínu. Rihanna er mikill aðdáandi hönnunar Tisci og sést ósjaldan klæðast fötum úr smiðju hans. Þau eru bæði í skýjunum yfir samstarfinu, en flíkurnar eru bæði dökkar og rómantískar.

„Rihanna er andlit sinnar kynslóðar. Hún er staðalímynd þess að vera ung og stórtkostleg, pönkuð og hæfileikarík. Hún er gáfuð, full af orku og guðdómlega falleg", segir Riccardi Tisci sem heldur mikið upp á söngkonuna.

Rihanna í klæðnaði frá Givenchy á tónleikum í Buffalo um helgina.
Tisci er ekki ókunnur því að hanna sviðsbúninga fyrir fræga fólkið, en hann gerði búininginn sem Madonna klæddist á Super Bowl í fyrra ásamt því að hafa hannað fatnað á rapparann Kanye West.

Maddonna klæddist fatnaði frá Tisci á Super Bowl í fyrra.
Teikning af sviðsflík fyrir Rihönnu eftir Tisci.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.