Nemendur stunda kynlíf á salernum HÍ Kristjana Arnarsdóttir skrifar 10. nóvember 2013 20:09
Vefurinn Student.is birti í gær óformlega könnun um kynlífsathafnir nemenda á háskólasvæðinu og segjast 15% þátttakenda hafa stundað kynlíf í þeim byggingum sem heyra undir Háskóla Íslands. Um helmingur svarenda segjast hafa íhugað að stunda kynlíf á háskólasvæðinu og þriðjungur viðurkenndi að hafa velt því fyrir sér hvaða staður háskólasvæðisins væri heppilegastur fyrir kynlífsathafnir.Alls tóku 70 manns þátt í könnuninni, 43 konur og 23 karlar, en könnunin var auglýst á umræðuvef Háskóla Íslands. Þátttakendur voru á aldrinum 18 til 40 ára.Þrír nemendur háskólans sem viðurkenndu að hafa stundað kynlíf á háskólasvæðinu gáfu sig fram í viðtal undir nafnleynd en í öllum þremur tilvikum hafði salerni orðið fyrir valinu sem vettvangur kynlífsins. Einn nemandi hafði á orði að það hefði gengið ágætlega að athafna sig á Þjóðarbókhlöðunni. Þar væru aðstæður til fyrirmyndar, nóg pláss og snagar þar sem hægt væri að hengja af sér. Margir nemendur háskólanna dvelja oft í skólanum við lestur langt fram á kvöld. Einn þátttakendanna, sem stundað hafði kynlíf innan veggja háskólans, sagði að með því að nýta tækifærið og stunda samfarir í skólanum hefði viðkomandi sloppið við samviskubit yfir því að koma örmagna og seint heim og ná þar af leiðandi ekki að njóta ásta með maka sínum þegar heim er komið, því það hefði verið búið að sjá fyrir kynlífinu í skólanum. Nánar má lesa um könnunina inn á vef Student.is.
Mest lesið Undir áhrifum fíkniefna á vinnuvél Innlent Tveggja stafa frost í kortunum og sundlaugar gætu þurft að loka Innlent Lygileg atburðarás í Landsbankanum Innlent Kyrrðarstund í Árbæjarkirkju vegna drengsins sem lést á Ítalíu Innlent Sjálfstæðismönnum brugðið yfir mögulegri frestun landsfundar Innlent Framkvæmdastjóri Hagkaups furðar sig á heimsókn lögreglu Innlent Verið að athuga frekari þvingunaraðgerðir Innlent Tíu ára drengur lést eftir bílslys á Ítalíu Erlent Sakamálin sem skóku þjóðina Innlent Jólagjafirnar í ár hittu beint í mark Innlent Fleiri fréttir Undir áhrifum fíkniefna á vinnuvél Sakamálin sem skóku þjóðina Tveggja stafa frost í kortunum og sundlaugar gætu þurft að loka Jólagjafirnar í ár hittu beint í mark Framkvæmdastjóri Hagkaups furðar sig á heimsókn lögreglu Kyrrðarstund í Árbæjarkirkju vegna drengsins sem lést á Ítalíu Verið að athuga frekari þvingunaraðgerðir Sjálfstæðismönnum brugðið yfir mögulegri frestun landsfundar Lygileg atburðarás í Landsbankanum Rann á snjóruðningstæki og bíllinn óökuhæfur Öryggisógn í Eystrasaltinu og óskiljanlegur „gjörningur“ lögreglu Tveir bílar rákust saman á brúnni við Fossála Veit vel að önnur kjör en laun þurfi að ræða Hætta leitinni í Meradölum Innan marka að kalla fjárfesta „nútíma þrælahaldara“ Súðavíkurhlíð opin á ný Leit við Meradali í snælduvitlausu veðri Búið að opna Holtavörðuheiði á ný Þungar vikur framundan Skilaréttur neytenda ríkari ef varan er keypt á netinu Lögregla hafi hálfpartinn „hrökklast frá“ Hæstiréttur fer beint í búvörulagamálið Spennan magnast fyrir fundi sem óvænt á að fresta Grímuskylda og ósáttir vínsalar Holtavörðuheiði enn lokuð Reyndu að ræna hraðbanka Komu hesti til bjargar úr gjótu Icelandair skoðar næstu skref í þróun flugflotans Áfram töluverð snjóflóðahætta á Vestfjörðum Áfengissala á helgidögum þjóðkirkjunnar stöðvuð af lögreglu Sjá meira