Tíska og hönnun

Agyness Deyn vinnur með Dr. Martens

Fyrirsætan Agyness Deyn mun senda frá sér línu í samstarfi við Dr. Martens síðar í mánuðinum. Þetta verður önnur línan sem þau vinna saman og verður um bæði skó og klæðnað að ræða. Í fyrri línunni sótti Deyn innblástur í pör tíunda áratugarins, eins og Johnny Depp og Winonu Ryder, en nú leitaði hún í japanska menningu eftir hugmyndum.

,,Línan verður fyrir sjálfstæðar og flottar stelpur sem þora að klæða sig og vera öðruvísi", segir Deyn um samstarfið.

Skór úr línunni.
Samfestingur úr línunni.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.