Tíska og hönnun

Verður ekki með í tískuvikunni í London

Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar
Sænska hönnunarhúsið Acne mun ekki vera með í tískuvikunni í London nú í febrúar. Aðdáendur þurfa þó ekki að örvænta, því tískuhúsið er ekki horfið sjónum, heldur tóku yfirmenn þar á bæ þá ákvörðun að sýna haust og vetrarlínuna frekar í París.

Yfirhönnuðurinn Jonny Johansson sagði ástæðuna vera að línan verði ekki tilbúin í tæka tíð, en tískuvikan í París er aðeins seinna í febrúar en sú breska. Acne rekur tvær búðir í París svo þessar breytingar ættu að falla vel í parísarbúa.

Jonny Johansson.
Vor- og sumarlína Acne 2013.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.