Viðskipti innlent

Kaupstefna opnar dyr fyrir íslenska hönnuði erlendis

Magnús Halldórsson skrifar
Erlend hönnunarfyrirtæki eru í vaxandi mæli farin að horfa til Íslands. Stórt norrænt húsgagnahönnunarfyrirtæki er meðal þeirra fyrirtækja sem boðað hafa komu sína á kaupstefnu í tengslum við HönnunarMars, þar sem íslenskum hönnuðum gefst kostur á að kynna vörur sínar fyrir þekktum norrænum hönnuðum.

HönnunarMars fer fram í fimmta skiptið dagana 14. til 17. mars næstkomandi, en á dögunum er íslensk hönnun í hávegum höfð, ýmsir viðburðir eru á dagskránni þar sem almenningi gefst kostur á að kynnast íslenskri hönnun, af öllum stærðum og gerðum.

Meðal viðburða að þessu sinni er kaupstefna sem kallast DesignMatch þar sem íslenskum hönnuðum gefst kostur á því að kynna verk sín fyrir norrænum hönnunarfyrirtækjum, en áhugi á íslenskri hönnun erlendis frá hefur farið vaxandi undanfarin misseri.

„Okkur hefur tekist, með þessari kaupstefnu að búa til ákveðna einokun, eða „exsclusivitet", fyrir þá kaupendur sem við bjóðum til þess að koma hingað, inn í ákveðna senu sem er eins og óplægður akur fyrir hönnunarfyrirtæki, innan þessarar norrænu hönnunarsenu," segir Greipur Gíslason, verkefnastjóri hjá Hönnunarmiðstöð.

Virt norrænt fyrirtæki á sviði húsgagnahönnunar, One Nordic Furniture Company, hefur þegar boðað komu sína á kaupstefnuna, auk fleiri fyrirtækja, en vörulína þess er hönnuð af fremstu norrænu hönnuðum samtímans. Einn af hornsteinum í framleiðslu fyrirtækisins eru gæði og sanngjarnt verð. Það er með höfuðstöðvar sínar í Helsinki, höfuðborg Finnlands, en hið margverðlaunaða sænska hönnunarfyrirtæki Form Us With Love hefur listræna stjórn með fyrirtækinu.

Greipur segir að kaupstefnur samhliða HönnurMars á liðnum árum, hafi skilað íslenskum hönnuðum miklum ávinningi og erlendu fyrirtækin sem taki þátt í henni séu afar ánægð með þau verkefni sem íslenskir hönnuðir kynna fyrir þeim.

„Öll árin sem kaupstefnurnar hafa verið haldnar, hafa einhverjir íslenskir hönnuðir eða íslensk hönnunarfyrirtæki, slegið í gegnum múrinn, og farið í dreifingu eða framleiðslu utan Íslands," segir Greipur.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×