Jakob skoraði mest í fyrstu tveimur leikjunum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. ágúst 2013 21:45 Jakob Örn Sigurðarson í leik á móti Búlgaríu. Mynd/KKÍ/Kristinn Geir Pálsson
Jakob Örn Sigurðarson er stigahæsti leikmaður íslenska körfuboltalandsliðsins eftir tvo leiki í undankeppni EM 2015 en hann hefur skorað 17,0 stig að meðaltali í leikjunum við Búlgari og Rúmena. Jakob skoraði 19 stig í fyrsta leiknum á móti Búlgaríu þar sem hann var stigahæstur og bætti síðan við 15 stigum í sigrinum á Rúmeníu þar sem hann var næststigahæstur á eftir Hauki Helga Pálssyni (24 stig). Hlynur Bæringsson hefur gefið flestar stoðsendingar (9) í íslenska liðinu og landsliðsfyrirliðinn er líka í öðru sæti í fráköstum (13) á eftir Pavel Ermolinskij (16). Pavel hefur stolið flestum boltum í íslenska liðinu eða 5 talsins. Jakob hefur einnig setti niður flestar þriggja stiga körfur (6) en næstir honum koma þeir Haukur Helgi Pálsson (4) og Jón Arnór Stefánsson (3). Jón Arnór hefur skorað 11,5 stig að meðaltali í leik og er þriðji stigahæsti leikmaður liðsins á eftir þeim Jakobi og Hauki Helga Pálssyni (14,5 stig í leik). Haukur Helgi er eini leikmaður liðsins sem hefur hitt úr helmingi skota sinna af þeim sem hafa tekið tíu skot eða fleiri í þessum tveimur leikjum. Haukur er með 50 prósent skotnýtingu en næstur kemur Hlynur Bæringsson með 42,1 prósent nýtingu. Jón Arnór er hinsvegar sá eini í íslenska liðinu sem hefur nýtt öll vítin sín (4/4) en félagar hans í liðinu eru aðeins með 48 prósent vítanýtingu (15/31) sem verður nú að teljast frekar dapurt. Ísland mætir Búlgaríu (Þriðjudagur 13. ágúst) og Rúmeníu (Föstudagur 16. ágúst) í síðustu tveimur leikjum sínum í riðlinum en þeir fara báðir fram í Laugardalshöllinni.
Körfubolti Íslenski körfuboltinn Mest lesið Bein útsending: Íslenska ofurfólkið keppir við þau bestu í heimi Sport Í leyfi eftir að hafa misst fjögurra mánaða afabarn Enski boltinn HM í bakgarðshlaupum: Mari hleypur með rifinn liðþófa | „Veit ekki hvað bíður mín“ Sport Íslensku stelpurnar Evrópumeistarar í fjórða sinn Sport Í beinni: ÍA - Víkingur | Víkingar ætla að halda toppsætinu Íslenski boltinn Fannst Inter besti kosturinn: „Ekkert að því að búa í Mílanó“ Fótbolti Eigandinn þuklaði á fyrirliða kvennaliðsins Enski boltinn Þrjú mörk á sjö mínútum í sannfærandi sigri Spurs Enski boltinn Körfuboltakvöld um Kane: „Finnst hann ekki hafa gert neitt hrikalegt“ Körfubolti Segja loforð svikin á meðan karfan fær stærsta íþróttahús landsins Sport Fleiri fréttir „Getur skorað en þetta er enginn Remy Martin“ Ármenningar enn ósigraðir og einir á toppnum Körfuboltakvöld um Kane: „Finnst hann ekki hafa gert neitt hrikalegt“ Hreinn úrslitaleikur um titilinn „Stóðum upp sterkari og svöruðum með sigri“ Lárus: Það er best að hitta þá ekki eftir svona leik Styrmir reif til sín flest fráköst Uppgjörið: Keflavík - Njarðvík 88-89 | Háspenna í grannaslagnum Uppgjör og viðtöl: Þór Þ. - KR 92-97 | Þrususlag í Þorlákshöfn lauk með sigri KR Hörður Axel búinn að ná Loga í þristum Fyrirliði Hauka sleit krossband Fékk öskurskilaboð frá Steph Curry Lætin í Kópavogi til skoðunar hjá KKÍ Sjáðu höggið og lætin í Kópavogi Dagskráin í dag: Stórleikur og öll lætin gerð upp í Körfuboltakvöldi „Hann var eitthvað að tala og svo lét hann höggin tala“ „Hann kýldi mig“ Uppgjörið: Álftanes - Valur 100-103 | Álftanes kastaði frá sér fyrsta sigri til Vals „Það er löngu kominn tími á að það sé tekið á þessum gæja“ Myndir: Allt brjálað í Smáranum eftir höggið frá Kane Töfrar Martins vöktu athygli Uppgjörið: Grindavík - Höttur 113-84 | Grindavík enn með fullt hús stiga eftir stórsigur Uppgjör og viðtöl: Stjarnan - ÍR 117-88 | Miskunnarlausir Stjörnumenn Uppgjörið: Tindastóll - Haukar 106-78 | Haukar áfram fallbyssufóður Helena segir að Þóra sé að uppskera: Þarf þessa ábyrgð Pavel: Þetta er verkefni fyrir Ægi sjálfan Pavel um bestu liðin í deildinni: Ég sé tækifæri fyrir KR New York einum leik frá því að eignast aftur meistara „Alltaf í einhverjum skotgröfum“ Gaz-leikur Pavels: „Þeir geta hætt að vera litli Höttur frá Egilsstöðum“ Sjá meira