Tíska og hönnun

Gyllt augu og fölbleikar varir hjá Chanel

Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar
Haust – og vetrarlína Chanel sem var sýnd á tískuvikunni í París fyrir skömmu var einstaklega falleg og svo oft áður. Peter Philips, sem hefur starfað sem listrænn stjórnandi og yfirförðunarfræðingur hjá tískuhúsinu frá árinu 2008, tilkynnti í síðasta mánuði að þessi lína yrði hans síðasta. Hann ætlar greinilega að láta muna eftir sé því förðunin á sýningunni var á allra vörum. Fyrirsæturnar voru með gyllta augnförðun og grafískan eyeliner í bland við fölbleikar varir og neglur. Útkoman var einstök.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×