Lífið

Yngstur í hakkarakeppni

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
MH-ingurinn Gabríel Mikaelsson mun kljást við harða keppinauta í hakkarakeppni HR sem fram fer í kvöld.
MH-ingurinn Gabríel Mikaelsson mun kljást við harða keppinauta í hakkarakeppni HR sem fram fer í kvöld.
Árleg hakkarakeppni HR fer fram í kvöld þar sem níu keppendur munu reyna að brjótast inn í tölvur hver annars og verjast árásum hinna um leið.

Fréttablaðið ræddi við einn nímenninganna, Helgu Guðmundsdóttur, í gær en hún er eini kvenkyns keppandinn í úrslitunum. Það er hins vegar MH-ingurinn Gabríel Mikaelsson sem er yngstur í hópnum, en hann er 18 ára gamall og starfar sem forritari á Vísi.is með skólanum.

„Ég lærði þetta nú bara sjálfur á netinu,“ segir Gabríel aðspurður hvernig hann lærði listina að hakka en hann hefur verið að fikta við hakkið síðan hann var 14 ára. „Ég hef samt aldrei almennilega komið mér inn í þetta fyrr en núna.“

Gabríel þorir ekki að segja til um úrslit kvöldsins en nefnir sigurvegara keppninnar í fyrra sem sigurstranglegan. „Hann heitir Helgi sá sem vann í fyrra og ég held að hann sé að keppa í ár. Svo er þarna líka náungi sem er í tölvuöryggismálunum hjá CCP,“ segir Gabríel og ljóst er að hann keppir ekki við neina aukvisa í kvöld.

En af hverju hakkarakeppni? Ýmir Vigfússon, lektor við tölvunarfræðideild HR og forsvarsmaður keppninnar, segir það ágætis spurningu. „Það er einfaldlega þannig að það eru svo óteljandi margar leiðir til að brjótast inn. Ef þú ætlar að reyna að verja þig þá þarftu að vita hverjar þessar leiðir eru. Besta vörnin er að skilja sóknina.“

Keppnin fer fram í HR klukkan 19.30 og er öllum opin. Einnig verður hægt að fylgjast með henni í beinni útsendingu á netinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.